Fjórir leikir fóru fram í riðlakeppni HM félagsliða í Egyptalandi í gær. Barcelona tryggði sér sæti í úrslitaleik mótsins og Veszprém steig stórt skref í sömu átt eftir ótrúlegan eins marks sigur á Füchse Berlin. Barcelona vann öruggan tíu marka sigur á egypska stórliðinu Zamalek, 39–29, eftir að hafa verið átta mörkum yfir í hálfleik, 20–12. Zamalek byrjaði betur og komst í 4–2 en Barcelona svaraði með fjórum mörkum í röð og tók smám saman öll völd. Spænska stórliðið var komið með átta marka forskot í hálfleik og hélt Zamalek síðan í hæfilegri fjarlægð eftir hlé. Viktor Gísli Hallgrímsson kom inn í mark Barcelona í hálfleik og lék allan síðari hálfleikinn. Zamalek skoraði 17 mörk eftir hlé en Barcelona vann síðari hálfleikinn engu að síður 19–17. Janus Daði Smárason kom einnig við sögu en skoraði ekki að þessu sinni. Ludovic Fabregas og Ian Barrufet voru markahæstir leikmanna Barcelona með sjö mörk hvor. Barcelona er með fullt hús stiga eftir tvo leiki og er þegar öruggt með efsta sæti A-riðils og sæti í úrslitaleiknum 1. október. Mikil dramatík var síðan í stórleik Füchse Berlin og Veszprém. Füchse var með yfirhöndina lengst af og leiddi 19–16 í hálfleik en Veszprém neitaði að gefast upp. Ungverska liðið sneri leiknum sér í vil á lokakaflanum og skoraði sigurmarkið þegar aðeins sex sekúndur voru eftir. Lokatölur urðu 34–33 fyrir Veszprém. Füchse hafði stjórnað leiknum í um 50 mínútur en endurkoma Veszprém reyndist mögnuð. Markvörður Füchse, Lasse Ludwig, varði 14 skot, þar af þrjú vítaköst og var besti leikmaður vallarins. Veszprém er því í afar sterkri stöðu í B-riðli og mætir Burgan frá Kúveit í lokaumferðinni á þriðjudag. Füchse mætir þá Al Ahly. Pinheiros frá Brasilíu vann stórsigur á Montada frá Marokkó í hinum leik A-riðils, 37–22. Pinheiros var 15–9 yfir í hálfleik og jók forskot sitt verulega eftir hlé. Þetta var fyrsti sigur Pinheiros á HM félagsliða frá árinu 2021. Al Ahly vann síðan öruggan sigur á Burgan í lokaleik dagsins, 35–17. Omar Khaled var markahæstur egypska liðsins með átta mörk. Úrslit dagsins á HM félagsliða: Montada – Pinheiros 22–37
Barcelona – Zamalek 39–29
Füchse Berlin – Veszprém 33–34
Al Ahly – Burgan 35–17

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.