
Valur hefur ekki farið jafn illa af stað í Olís-deild kvenna í tólf ár en liðið er aðeins með tvö stig eftir fyrstu þrjár umferðir tímabilsins. Valur tapaði óvænt gegn Selfossi í 1.umferð deildarinnar en vann síðan gríðarlega góðan sigur á ÍBV á heimavelli í 2.umferðinni. Í síðustu umferð tapaði Valur síðan gegn Haukum á Ásvöllum og er því aðeins með tvö stig að loknum þremur leikjum. Fara þarf aftur til tímabilsins 2014/15 til að finna sambærilega byrjun liðsins í deildinni. Það tímabil var Valur einnig með tvö stig eftir fyrstu þrjár umferðirnar. Byrjunin versnaði enn frekar því eftir fimm leiki var liðið enn aðeins með tvö stig. Óskar Bjarni Óskarsson var þá þjálfari Vals og honum til aðstoðar var Arnar Daði Arnarsson. Valur náði þó að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun og endaði í sjötta sæti í tólf liða úrvalsdeild. Liðið gerði einnig góða hluti í bikarkeppninni og fór alla leið í úrslitaleik. Þar reyndist Grótta hins vegar mun sterkari og vann öruggan 29-14 sigur. Nú, tólf árum síðar, stendur Valur aftur með tvö stig eftir þrjá leiki. Anton Rúnarsson og hans konur mæta KA/Þór í næstu umferð Olís-deildarinnar á föstudaginn og síðan Fram í 5. umferð. Valskonur þurfa því að sækja stig úr næstu tveimur leikjum ætli þær að forðast að jafna byrjun liðsins frá tímabilinu 2014/15, þegar Valur var aðeins með tvö stig að loknum fyrstu fimm umferðunum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.