Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, kannast ekki við að svokallaður krísufundur hafi verið haldinn hjá karlaliði félagsins í aðdraganda leiks liðsins gegn KA í Olís-deild karla í síðustu viku. Leikur Vals gegn KA tapaðist á heimavelli en liðið er með fjögur stig í Olís-deildinni eftir fjóra leiki. Rætt var um stöðuna hjá Val í síðasta uppgjörsþætti Handkastsins og þar kom fram að samkvæmt heimildum þáttarins hefði verið haldinn krísufundur hjá liðinu fyrir Evrópuleikinn. Hafði heyrt af krísufundi hjá Val fyrir KA-leikinn Valur svaraði fyrir sig inni á vellinum í gær með stórsigri á danska liðinu Mors-Thy í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Eftir leikinn spurði Þorsteinn Hjálmsson, fréttaritari Vísis, Ágúst út í fregnir Handkastsins af fundinum. „Nei, allavega veit ég ekki af því. Nema einhverjir aðrir en ég séu farnir að halda krísufundi. Þú verður að spyrja Handkastið að því,“ sagði Ágúst í samtali við Vísi. Ágúst benti á að töluverðar breytingar hefðu orðið á leikmannahópnum frá síðasta tímabili en Valur eru ríkjandi Íslands- og deildarmeistarar. „Mótið er rétt að byrja og við erum með mjög breytt lið. Við misstum fimm til sex leikmenn frá því í fyrra, þannig að við erum að koma okkur aðeins af stað.“ Það er stutt í næsta verkefni Vals en liðið tekur á móti Þór í Olís-deild karla á föstudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.