Cornelia mætt til Eyja
Kårra

Sænski markvörðurinn Cornelia Hermansson er komin til Vestmannaeyja og æfði með kvennaliði ÍBV í fyrsta skipti í gær.

Handkastið greindi frá því í byrjun september að félagið hefði samið við hana. Cornelia birti í vikunni myndskeið á TikTok þar sem hún sýnir ferðalag sitt frá Svíþjóð til Vestmannaeyja. Hún er því komin á staðinn og farin að undirbúa sig fyrir verkefnin með Eyjaliðinu.

ÍBV heimsækir nýliða HK í fjórðu umferð Olís-deildar kvenna á laugardaginn klukkan 15:00 í Kórnum. Sá leikur gæti orðið fyrsti leikur Corneliu í ÍBV-treyjunni en félagaskipti hennar og samningur hjá félaginu hafa enn ekki verið skráð. Því á eftir að ganga frá þeim málum áður en hún getur tekið þátt í leiknum.

Cornelia er íslenskum handboltaáhugamönnum að góðu kunn eftir þriggja ára dvöl hjá Selfossi frá 2022 til 2025. Hún átti meðal annars þátt í að koma liðinu aftur upp í Olís-deildina og lék með því þegar Selfoss hafnaði í fjórða sæti deildarinnar vorið 2025.

Hún sneri aftur til Svíþjóðar sumarið 2025 og gekk til liðs við Kungälv en meiðsli héldu henni frá keppni mánuðum saman á síðustu leiktíð.

Corneliu er ætlað að fylla skarð Amalie Frøland, sem sleit krossband í undanúrslitaeinvígi ÍBV og Hauka á síðasta tímabili. Koma sænska markvarðarins er því mikilvæg viðbót fyrir Eyjaliðið sem er með fjögur stig að loknum þremur leikjum í Olís-deild kvenna.

@corneliahermansso

Flyttvlogg💌✨

♬ original sound - Radio Music

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top