Al Ahly frá Egyptalandi sá til þess að Füchse Berlín leikur ekki um verðlaun á HM félagsliða í handbolta eftir óvæntan 30-27 sigur í lokaumferð riðlakeppninnar í gær. Viktor Gísli Hallgrímsson átti síðan frábæra frammistöðu í marki Barcelona sem vann Montada frá Marokkó, 51-15. Füchse þurfti sigur eða jafntefli gegn Al Ahly til þess að tryggja sér annað sæti B-riðils og sæti í bronsleik keppninnar. Þýska stórliðið, sem lék til úrslita í Meistaradeild Evrópu á síðasta tímabili, réð hins vegar illa við heimamenn í Al Ahly. Al Ahly byrjaði leikinn af miklum krafti og komst í 5-2. Füchse svaraði með fjórum mörkum í röð og komst yfir en Egyptarnir voru sterkari undir lok fyrri hálfleiks og leiddu 16-14 í hálfleik. Al Ahly jók muninn í fimm mörk snemma í síðari hálfleik. Füchse náði að minnka muninn niður í eitt mark, 26-25, þegar skammt var eftir en Al Ahly hélt haus á lokamínútunum og vann að lokum 30-27. Mohamed Hesham var valinn maður leiksins en Matthes Langhoff var markahæstur hjá Füchse með átta mörk. Úrslitin þýða að Al Ahly mætir erkifjendum sínum í Zamalek í bronsleiknum á morgun. Füchse þarf hins vegar að sætta sig við leik um fimmta sætið gegn brasilíska liðinu Pinheiros. Barcelona var þegar búið að tryggja sér sæti í úrslitaleiknum fyrir lokaleik sinn í A-riðli en sýndi enga miskunn gegn Montada frá Marokkó. Spænska stórveldið vann 51-15 eftir að hafa leitt 23-8 í hálfleik. Þetta var stærsti sigur Barcelona í sögu HM félagsliða en fyrra metið var 32 marka sigur gegn Ministros frá Mexíkó árið 2022. Viktor Gísli Hallgrímsson kom í mark Barcelona í síðari hálfleik og lokaði nánast markinu. Viktor varði 13 af 20 skotum sem hann fékk á sig og var því með 65 prósenta markvörslu. Janus Daði Smárason skoraði tvö mörk fyrir Barcelona og gaf tíu stoðsendingar. Daniel Fernández var markahæstur Barcelona með tólf mörk, Adrián Sola skoraði ellefu og Djordje Cikusa tíu. Barcelona vann þar með alla þrjá leiki sína í riðlinum og mætir Veszprém í úrslitaleik HM félagsliða á morgun. Veszprém lauk einnig riðlakeppninni með fullt hús stiga. Ungverska stórliðið vann öruggan 44-19 sigur á Burgan frá Kúveit og mætir því Barcelona í úrslitaleiknum. Í A-riðlinum tryggði Zamalek sér annað sætið með naumum 28-27 sigri á Pinheiros. Zamalek leiddi 16-14 í hálfleik og komst í 28-25 undir lokin. Brasilíumenn skoruðu síðustu tvö mörkin og fengu tækifæri til að jafna í lokasókninni en tókst ekki að nýta það. Akram Saad var markahæstur Zamalek með átta mörk. Á lokadegi mótsins á morgun mætast Montada og Burgan í leik um sjöunda sætið, Pinheiros og Füchse Berlín um fimmta sætið, Zamalek og Al Ahly um bronsið og Barcelona og Veszprém um heimsmeistaratitil félagsliða. Úrslit gærdagsins á HM félagsliða: Zamalek – Pinheiros 28-27Viktor Gísli með 65 prósenta markvörslu
Veszprém vann með 25 mörkum
Barcelona – Montada 51-15
Veszprém – Burgan 44-19
Füchse Berlín – Al Ahly 27-30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.