Lemgo og Stuttgart fögnuðu sigrum
Andreas Gora / dpa Picture-Alliance via AFP)

Tveir leikir fóru fram í þýsku Bundesligunni í kvöld þegar 7. umferð deildarinnar hófst. TBV Lemgo Lippe hafði betur gegn Hamburg og Stuttgart vann fimm marka útisigur á Eisenach.

Lemgo vann Hamburg, 34:30, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 16:13. Heimamenn tóku völdin þegar leið á fyrri hálfleikinn og náðu mest sex marka forskoti í síðari hálfleik. Hamburg minnkaði muninn í þrjú mörk, 23:20, þegar um stundarfjórðungur var eftir en komst ekki nær.

Niels Versteijnen var markahæstur Lemgo með níu mörk og Hendrik Wagner skoraði sjö. Martin Hovde var markahæstur Hamburg með sjö mörk úr sjö skotum.

Einar Þorsteinn Ólafsson var í leikmannahópi Hamburg en komst ekki á blað í markaskorun. Hamburg er með þrjú stig eftir sjö leiki og hefur tapað fimm leikjum á tímabilinu.

Athygli vakti að aðeins einn dómari dæmdi leikinn inni á vellinum. Denis Regner meiddist á hné í upphitun og Julian Köppl þurfti því að sjá einn um dómgæsluna. Regner fylgdist fyrst með frá ritaraborðinu og var í samskiptum við Köppl í gegnum heyrnartól áður en sambandið bilaði í síðari hálfleik.

Stuttgart fór með bæði stigin frá Eisenach eftir 33:28 sigur. Gestirnir byrjuðu betur og komust í 8:4 en Eisenach vann sig aftur inn í leikinn og staðan var aðeins 16:15 fyrir Stuttgart í hálfleik.

Stuttgart náði síðan undirtökunum á nýjan leik eftir hlé og var komið fimm mörkum yfir, 23:18, þegar stundarfjórðungur var eftir. Eisenach tókst ekki að ógna forskotinu að ráði eftir það og Stuttgart sigldi sigrinum heim.

David Móré var markahæstur Eisenach með sjö mörk. Tapið var þriðja tap Eisenach í röð í Bundesligunni og liðið er með þrjú stig eftir sjö leiki.

Úrslit kvöldsins í þýsku Bundesligunni:

TBV Lemgo Lippe – Hamburg 34:30 (16:13)
ThSV Eisenach – TVB Stuttgart 28:33 (15:16)

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top