Andri Fannar Elísson, leikmaður Hauka, var ánægður eftir níu marka sigur liðsins gegn Víkingi í 5. umferð Olís-deildar karla í gær. Haukar eru með fullt hús stiga eftir fyrstu fimm leiki tímabilsins. Lokatölur 38-29 Haukum í vil en Andri Fannar skoraði fjögur mörk úr fjórum skotum í leiknum. Rætt var um leik Hauka og Víkings í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. „Mér líður þrusuvel. Við erum með fullt hús stiga og það er geggjuð stemning í liðinu. Það var líka frábær stemning á pöllunum og við erum að fá hellings orku frá fólkinu okkar sem er mjög gott,“ sagði Andri Fannar í viðtali við samfélagsmiðla Hauka eftir leikinn. Haukar hafa því farið vel af stað í deildinni en Andri Fannar segir liðið einnig stefna hátt í bikarkeppninni. Spurður út í næstu viðureign þar kvaðst hann spenntur fyrir verkefninu. „Mér líst þokkalega á það. Við höfum spilað við þá áður í deildinni en maður veit ekki hvort það hjálpar eða ekki. Þetta verður geggjaður leikur og við viljum fara alla leið í bikarnum.“ Haukar mæta Stjörnunni í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins á fimmtudaginn í næstu viku en Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar frá síðustu leiktíð. Haukar höfðu betur gegn Stjörnunni í 3.umferðinni fyrr á þessu tímabili 37-31 í Garðabænum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.