Blær Hinriksson og félagar í SC DHfK Leipzig sneru aftur á sigurbraut í þýsku 2. Bundesligunni í gærkvöldi þegar liðið vann TuSEM Essen, 35-32, á útivelli. Leipzig hafði tapað sínum fyrsta deildarleik á tímabilinu gegn Dormagen í umferðinni á undan en svaraði því tapi með góðum sigri í Essen. Liðið er með átta stig eftir sex leiki og hefur unnið fjóra þeirra. Leikurinn var jafn framan af og staðan var 7-7 eftir 17 mínútur. Þá náði Leipzig góðum kafla og breytti stöðunni í 15-10. Blær Hinriksson skoraði fimmtánda mark Leipzig og bætti öðru marki við skömmu síðar þegar hann kom liðinu í 16-12. Gestirnir leiddu 19-14 í hálfleik. Leipzig hélt Essen í hæfilegri fjarlægð lengst af í síðari hálfleik og var meðal annars með sex marka forskot, 29-23. Heimamenn neituðu þó að gefast upp og náðu að minnka muninn í 34-32 þegar skammt var eftir. Tom Koschek skoraði síðasta mark leiksins og tryggði Leipzig 35-32 sigur. Blær skoraði tvö mörk fyrir Leipzig. Franz Semper fór mikinn og var markahæstur í leiknum með níu mörk, þar af átta í fyrri hálfleik. Staffan Peter skoraði sex mörk og Lukas Binder fimm. Sigurinn var einnig ákveðin hefnd fyrir Leipzig en Essen hafði slegið liðið úr þýsku bikarkeppninni aðeins sex vikum áður. TuSEM Essen – SC DHfK Leipzig 32-35 (14-19)
Mörk Leipzig: Franz Semper 9, Staffan Peter 6, Lukas Binder 5, Luka Rogan 3, Dean Bombač 3, Matěj Klíma 2, Blær Hinriksson 2, Finn Schroven 2, Moritz Preuss 2, Tom Koschek 1.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.