Tveir fyrrverandi leikmenn Vals, Þorvaldur Örn Þorvaldsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson, voru í eldlínunni með liðum sínum í Póllandi og á Spáni í gærkvöldi. Báðir gátu þeir fagnað sigri. Þorvaldur Örn Þorvaldsson og félagar í Wybrzeże Gdańsk unnu stórsigur á Piotrkowianin, 38-23, á heimavelli í pólsku úrvalsdeildinni. Wybrzeże lagði grunninn að sigrinum strax í fyrri hálfleik og leiddi 20-12 að honum loknum. Þorvaldur komst ekki á blað í leiknum. Wiktor Tomczak var markahæstur hjá Wybrzeże með sjö mörk en liðið hefur nú unnið þrjá af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni og er með níu stig. Þetta var annar sigur Wybrzeże á aðeins fjórum dögum en liðið gerði sér lítið fyrir og vann Gummersbach, 38-34, á útivelli í Evrópudeildinni á þriðjudagskvöld. Þorvaldur skoraði tvö mörk í þeim leik. Á Spáni vann Caserío Ciudad Real dramatískan tveggja marka sigur á Ademar León, 35-33, í spænsku ASOBAL-deildinni. Heimamenn voru með sex marka forskot í hálfleik, 19-13, og náðu mest átta marka forystu eftir hlé áður en Ademar gerði leikinn spennandi undir lokin. Þorgils Jón Svölu Baldursson skoraði eitt mark fyrir Caserío í leiknum. Jorge Maqueda og David Cadarso voru markahæstir heimamanna með sex mörk hvor. Caserío hefur farið vel af stað á tímabilinu og er enn taplaust í spænsku deildinni eftir þrjá leiki, með tvo sigra og eitt jafntefli.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.