Sigur hjá Adam og Erlingi í þýsku B-deildinni
Minden

Tvö Íslendingalið voru í eldlínunni í þýsku B-deildinni í dag þar sem bæði Adam Thorstensen og Erlingur Richardsson fögnuðu sigri. Erlingur stýrði GWD Minden til sigurs í sínum fyrsta leik við stjórnvölinn hjá félaginu.

Adam Thorstensen og félagar í VfL Lübeck-Schwartau unnu öruggan sjö marka sigur á Hamm-Westfalen, 33–26, á heimavelli.

Lübeck var þremur mörkum yfir í hálfleik, 16–13, en Hamm hélt sér lengi vel inni í leiknum. Heimamenn reyndust hins vegar mun sterkari á lokakaflanum og sigldu sigrinum örugglega í höfn. Sigurinn var sá fimmti hjá Lübeck í fyrstu sex leikjum tímabilsins og er liðið komið með tíu stig í toppbaráttu deildarinnar.

Á sama tíma fór Erlingur Richardsson vel af stað sem þjálfari GWD Minden. Minden vann Dessau-Roßlauer 40–37 í miklum markaleik í fyrsta leik Erlings á hliðarlínunni.

Minden var 22–21 yfir í hálfleik en gestirnir frá Dessau náðu að snúa leiknum sér í vil eftir hlé og voru meðal annars 29–28 yfir þegar 20 mínútur voru eftir. Minden náði hins vegar aftur undirtökunum á lokakaflanum og hélt haus þegar mest á reyndi. Heimamenn skoruðu tvö af síðustu þremur mörkum leiksins og fögnuðu 40–37 sigri.

Karolis Antanavicius var markahæstur hjá Minden með tíu mörk en Lasse Franz skoraði átta.

Þetta var fyrsti leikur Erlings eftir að hann tók óvænt við Minden á dögunum. Þýska félagið leysti Erling undan samningi hans við ÍBV eftir að hafa sagt Aaron Ziercke upp störfum í kjölfar erfiðrar byrjunar á tímabilinu.

Minden hafði aðeins unnið einn af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni áður en Erlingur tók við en Íslendingurinn byrjaði því á besta mögulega hátt með tveimur stigum í sínum fyrsta leik. Minden er nú með fimm stig eftir sex leiki en Lübeck-Schwartau er með tíu stig og í harðri baráttu við topplið deildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top