Fimm lið eru enn með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir í Meistaradeild kvenna. FTC, Team Esbjerg og Brest Bretagne hafa unnið alla leiki sína í A-riðli og ríkjandi Evrópumeistarar Metz og Györ hafa gert slíkt hið sama í B-riðli. FTC tryggði sér dramatískan eins marks sigur á CSM Bucuresti í leik umferðarinnar, Metz og Györ héldu áfram sigurgöngu sinni og Podravka náði í sín fyrstu stig gegn HSG Blomberg-Lippe. Á sunnudeginum héldu Esbjerg og Brest fullkominni byrjun sinni áfram á meðan Storhamar vann sögulegan útisigur á Odense. A-RIÐILL FTC 24:23 CSM Bucuresti – Simon tryggði sigurinn á lokasekúndunum CSM byrjaði betur og þrjú mörk í röð frá Emmu Friis komu gestunum í 4:2. Anna Kristensen tók hins vegar til sinna ráða í marki FTC og góð markvarsla hennar lagði grunninn að 5:1 kafla heimakvenna. CSM náði að minnka muninn í 9:8 en FTC hélt frumkvæðinu og fór með tveggja marka forskot inn í hálfleikinn, 13:11. Catherine Gabriel kom inn í mark CSM eftir hlé og breytti leiknum með góðri markvörslu, en Kristensen hélt áfram að verja hinum megin. Vörn FTC náði jafnframt góðum tökum á Dariu Dmitrieva og Valeriiu Maslova, sem skoruðu aðeins úr tveimur af sjö skotum hvor. Emma Friis hélt CSM inni í leiknum og þegar aðeins 31 sekúnda var eftir jafnaði rúmenska liðið í 23:23. Síðasta orðið átti hins vegar Petra Simon. Hún skoraði sigurmark FTC á lokasekúndunum og tryggði ungverska liðinu 24:23 sigur og fjórða sigurinn í jafn mörgum leikjum. Team Esbjerg 27:21 Buducnost – Mørk og Reistad fóru fyrir Esbjerg Buducnost byrjaði betur og komst í 3:1 en tvö mörk frá Noru Mørk hjálpuðu Esbjerg að svara með þremur mörkum í röð og ná forystunni. Leikurinn var jafnari en búist hafði verið við og Buducnost náði að halda sér vel inni í honum. Esbjerg náði hins vegar smám saman yfirhöndinni eftir hlé og rauða spjaldið sem Nina Bulatovic fékk reyndist gestunum dýrkeypt. Mørk og Reistad tóku stjórnina í sóknarleik Esbjerg og Helene Hansen bætti við fimm mörkum á síðasta stundarfjórðungnum. Buducnost minnkaði muninn í 23:20 þegar sex mínútur voru eftir en Esbjerg svaraði með þremur mörkum í röð og gerði endanlega út um leikinn. Mørk og Reistad skoruðu átta mörk hvor og samtals 16 af 27 mörkum Esbjerg. Mørk nýtti öll átta skotin sín. Sola 27:32 Dortmund – annar sigur Dortmund í röð Liðin skiptust á mörkum framan af en um miðjan fyrri hálfleik varð Dortmund fyrsta liðið til að ná tveggja marka forskoti, 11:9. Sarah Wachter varði vel og Alina Grijseels fór fyrir sóknarleik gestanna. Dortmund vann 6:1 kafla undir lok fyrri hálfleiks og leiddi 20:15 í hálfleik. Sola mætti hins vegar af miklum krafti til síðari hálfleiks. Norska liðið skoraði fyrstu þrjú mörkin og með Camillu Herrem og Fridu Brandbu Andersen í fararbroddi minnkaði Sola muninn í eitt mark, 23:22. Dortmund svaraði um hæl með þremur mörkum í röð og eftir það náðu heimakonur ekki að ógna sigrinum að ráði. Grijseels var frábær og skoraði tíu mörk fyrir Dortmund, sem hefur nú unnið tvo leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu tveimur. Sola er hins vegar enn án stiga eftir fjórar umferðir. Brest 28:25 Krim – 4.000 marka múrinn rofinn Krim byrjaði vel og komst í 8:5. Jovana Risovic var jafnframt öflug í marki gestanna og gerði Brest erfitt fyrir. Heimakonur náðu þó að vinna sig aftur inn í leikinn og komust yfir í fyrsta sinn, 11:10, á 25. mínútu. Brest leiddi síðan 13:12 í hálfleik. Krim hélt áfram að berjast í síðari hálfleiknum og jafnaði nokkrum sinnum en sterk vörn Brest og markvarsla Camille Depuiset reyndust mikilvæg. Brest náði þriggja marka forskoti, 20:17, og hélt frumkvæðinu það sem eftir lifði. Krim minnkaði muninn í 27:25 þegar um ein og hálf mínúta var eftir en Siobann Delaye skoraði síðasta mark leiksins og innsiglaði sigurinn. Méline Nocandy skoraði sex mörk og náði jafnframt merkilegum áfanga þegar hún skoraði 4.000. mark Brest í sögu Meistaradeildarinnar. Krim lék sinn 350. leik í keppninni og varð aðeins annað félagið á eftir Buducnost til að ná þeim áfanga, en bíður enn eftir fyrsta stigi tímabilsins. B-RIÐILL Blomberg-Lippe 31:33 Podravka – þrjú íslensk mörk en fyrstu stigin létu bíða eftir sér Blomberg byrjaði leikinn af miklum krafti og var komið í 11:6 eftir 17 mínútur. Ivica Obrvan, þjálfari Podravka, tók þá leikhlé og það skilaði tilætluðum árangri því króatíska liðið svaraði með 7:2 kafla og jafnaði leikinn. Heimakonur náðu aftur frumkvæðinu, Nieke Kühne, Nuria Bucher og Maxi Mühlner báru uppi stóran hluta sóknarleiksins og Blomberg fór með 15:13 forskot inn í hálfleikinn. Podravka sneri hins vegar leiknum sér í hag í síðari hálfleik. Matea Šošo reyndist Blomberg sérstaklega erfið og gestirnir náðu fimm marka forskoti, 27:22, þegar um tólf mínútur voru eftir. Blomberg neitaði að gefast upp og náði að minnka muninn í aðeins eitt mark, 31:30. Podravka hélt þó haus á lokamínútunum og tryggði sér 33:31 sigur og um leið sín fyrstu stig á tímabilinu. Elín Rósa átti góðar innkomur fyrir Blomberg og nýtti bæði skotin sín, tvö mörk úr tveimur skotum, auk þess sem hún átti eina stoðsendingu. Díana Dögg skoraði eitt mark úr tveimur skotum og lagði einnig upp eitt mark. Nieke Kühne var langmarkahæst Blomberg með ellefu mörk úr 17 skotum og átti auk þess fimm stoðsendingar. Nuria Bucher skoraði sex mörk og Maxi Mühlner fjögur. Hjá Podravka fór Matea Šošo á kostum og skoraði ellefu mörk úr 15 skotum. Blomberg bíður því enn eftir fyrstu stigunum í Meistaradeildinni eftir fjóra leiki, en Podravka komst á blað Metz 36:25 Nykøbing – meistararnir áfram á fullri ferð Chloé Valentini og Kristina Jörgensen komu Metz af stað af miklum krafti og skoruðu saman sjö mörk á fyrstu ellefu mínútunum. Staðan var þá orðin 9:3. Nykøbing svaraði með þremur mörkum í röð en Metz gerði nákvæmlega það sama og náði aftur sex marka forskoti. Anne Christine Bossen varði átta skot fyrir Nykøbing í fyrri hálfleik en það dugði ekki til og Metz leiddi 18:11 í hálfleik. Emmanuel Mayonnade gat leyft sér að dreifa álaginu í seinni hálfleik og Lena Grandveau og Lylou Borg nýttu tækifærið vel. Metz vann meðal annars 6:0 kafla og komst í 30:19. Mia Svele var markahæst leiksins með níu mörk fyrir Nykøbing en liðsheild Metz reyndist einfaldlega of sterk. Fjórir leikmenn Metz skoruðu fimm mörk hver og liðið hefur nú unnið alla fjóra leiki sína. Györ 36:32 Gloria Bistrita – Reichert með 14 en Györ hélt út Györ náði snemma 4:2 forskoti en Gloria jafnaði í 4:4. Þá tók ungverska stórliðið völdin. Emilie Hovden fór fyrir 5:0 kafla sem kom Györ í 9:4 og Bruna de Paula hélt áfram að bæta við. Munurinn varð sex mörk en Johanna Reichert hélt Gloria á floti og skoraði sex mörk í fyrri hálfleik. Györ leiddi 20:16 í hálfleik og náði síðan stærsta forskoti sínu, 25:17, eftir 5:1 kafla snemma í síðari hálfleik. Gloria var þó langt frá því að vera búið. Rúmenska liðið svaraði með fjórum mörkum í röð og Reichert fór á kostum. Hún skoraði öll sjö mörk Gloria á tíu mínútna kafla undir lok leiksins. Munurinn fór nokkrum sinnum niður í aðeins tvö mörk en Györ hélt haus og tryggði sér fjórða sigurinn í röð. Reichert lauk leik með ótrúleg 14 mörk úr 17 skotum, en Bruna de Paula var markahæst Györ með sjö mörk úr átta skotum. Odense 23:26 Storhamar – sögulegur sigur norska liðsins Leikurinn var jafn frá fyrstu mínútu. Odense náði tveggja marka forskoti, 7:5, eftir 14 mínútur en markverðirnir Johanna Bundsen og Eli Marie Raasok voru báðar með 39 prósenta markvörslu í fyrri hálfleik. Odense leiddi 12:11 í hálfleik. Leikurinn snerist hins vegar algjörlega í seinni hálfleik. Storhamar skoraði sex mörk í röð og breytti stöðunni í 18:13. Kristin Venn og Christina Pedersen létu mikið að sér kveða í sóknarleik norska liðsins á meðan Raasok hélt áfram að loka markinu. Odense gafst ekki upp og minnkaði muninn í 24:22 þegar aðeins mínúta var eftir, en nær komst danska liðið ekki. Storhamar vann 26:23 og fagnaði þar með sínum fyrsta sigri gegn Odense – í 50. leik félagsins í Meistaradeildinni. Raasok var enn á ný lykilmaður og varði 16 skot, 43 prósent þeirra skota sem hún fékk á sig. Sanne Løkka Hagen var markahæst Storhamar með sex mörk. Odense lék jafnframt sinn fyrsta leik eftir að félagið skildi við Jakob Vestergaard og Mark Strandgaard tók tímabundið við liðinu.
Markahæstar: Elizabeth Omoregie 6 – Emma Friis 7.
FTC hélt fullkominni byrjun sinni áfram en það mátti vart tæpara standa þegar ungverska liðið lagði CSM Bucuresti 24:23 í leik umferðarinnar.
Markahæstar: Nora Mørk og Henny Reistad 8 – Jovana Skrobic 6
Norska tvíeykið Nora Mørk og Henny Reistad fór fyrir Team Esbjerg þegar danska liðið vann Buducnost 27:21 og hélt fullkominni byrjun sinni áfram.
Markahæstar: Frida Brandbu Andersen 8 – Alina Grijseels 10.
Borussia Dortmund virðist hafa fundið taktinn eftir erfiða byrjun og vann sinn annan leik í röð með 32:27 útisigri á Sola.
Markahæstar: Méline Nocandy 6 – Ana Abina og Anne With Johansen 5.
Brest vann sinn fjórða leik í röð þegar franska liðið lagði Krim 28:25 í hörkuleik.
Markahæstar: Nieke Kühne 11 – Matea Šošo 11.
HSG Blomberg-Lippe var hársbreidd frá því að ná í sín fyrstu stig í Meistaradeildinni en varð að sætta sig við 33:31 tap gegn Podravka. Íslensku landsliðskonurnar Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir skoruðu samtals þrjú mörk fyrir þýska liðið.
Markahæstar: Mia Svele 9 – Chloé Valentini, Suzanne Wajoka, Kristina Jörgensen og Lylou Borg 5.
Ríkjandi Evrópumeistarar Metz unnu sinn fjórða leik í röð með öruggum 36:25 sigri á Nykøbing Falster.
Markahæstar: Bruna de Paula 7 – Johanna Reichert 14.
Györ hélt áfram sigurgöngu sinni með 36:32 sigri á Gloria Bistrita en rúmenska liðið neitaði að gefast upp þrátt fyrir erfiða stöðu.
Markahæstar: Helene Fauske og Mie Højlund 4 – Sanne Løkka Hagen 6.
Storhamar vann sinn fyrsta sigur gegn Odense í sögu félagsins þegar norska liðið hafði betur, 26:23, í norrænu uppgjöri í Danmörku.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.