44 leikmenn valdir í U17 ára landsliðið – HK á flesta fulltrúa
Kristinn Steinn Traustason

Rakel Dögg Bragadóttir og Arnar Daði Arnarsson, landsliðsþjálfarar U17 ára landsliðs kvenna, hafa valið 44 leikmenn frá 12 félögum í æfingahóp fyrir æfingaviku í október.

HK á flesta fulltrúa í hópnum, níu talsins, en Valur kemur þar á eftir með sjö leikmenn. Haukar eiga fimm fulltrúa og Fram, Selfoss og ÍBV fjóra hvert. Víkingur á þrjá leikmenn í hópnum, FH, Stjarnan og Grótta tvo hvert en Afturelding og ÍR einn hvort.

Landsliðið kemur saman til æfinga 21. október og æfir út þá viku.

Hópurinn undirbýr sig fyrir undankeppni Evrópumótsins sem fer fram í Færeyjum í lok nóvember. Þar mætir Ísland heimakonum, Tyrklandi og Ísrael.

Hópurinn er eftirfarandi:

Alma Hrund Helgadóttir, HK

Anja Gyða Vilhelmsen, Valur

Anna Bára Hjaltadóttir, Fram

Bára Ingibjörg Leifsdóttir, Selfoss

Bjartey Hanna Gísladóttir, Fram

Brynja Sif Gísladóttir, Fram

Elma Kolbrún Bjarnadóttir, FH

Embla Einarsdóttir, Valur

Embla Rán Þórhallsdóttir, HK

Emilía Guðný Magnúsdóttir, HK

Emma Rut Sigurbjörnsdóttir, Afturelding

Eva Sól Axelsdóttir, Selfoss

Freydís Ragna Kristjánsdóttir, HK

Freyja Sveinbjörnsdóttir, Fram

Glódís Dúna Óðinsdóttir, ÍBV

Hekla Björk Arnardóttir, Haukar

Helga Jenný Vigfúsdóttir, HK

Hildur Elísabet Hreiðarsdóttir, Stjarnan

Hjördís Gauja Kjartansdóttir, Selfoss

Hrefna Dís Valgeirsdóttir, Haukar

Hulda Þorradóttir, FH

Íris Lindberg Sumarliðadóttir, Haukar

Katrín Ásta Jóhannsdóttir, ÍR

Kristín Einarsdóttir, HK

Lilja Guðrún Árnadóttir, HK

Lilja Hraundal, Valur

Matthildur Helga Ólafsdóttir, Valur

Mirra Mjöll Arnarsdóttir, Víkingur

Sara Birna Guðjónsdóttir, Haukar

Sara Sigurvinsdóttir, Valur

Sara Sveinsdóttir, Valur

Sigurrós Sverrisdóttir, ÍBV

Soffia Helen Sölvadóttir, Grótta

Sonja Guðrún Hafþórsdóttir, Víkingur

Sóldís Sif Kjartansdóttir, ÍBV

Steingerður Lilja Hauksdóttir, Stjarnan

Sunneva Sigurðardóttir, HK

Sylvía Ósk Ástþórsdóttir, Haukar

Sylvía Sigrún Eðvarsdóttir, Grótta

Tanja Harðardóttir, ÍBV

Tinna Dröfn Hauksdóttir, HK

Tinna Víðisdóttir, Víkingur

Þórey Mjöll Guðmundsdóttir, Selfoss

Þórhildur Káradóttir, Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top