Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið 18 leikmenn fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Póllandi sem fram fara í lok október. Athygli vekur að Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Hauka, er ekki í hópnum þrátt fyrir frábæra byrjun hennar á tímabilinu í Olís-deild kvenna. Landsliðshópur valinn fyrir vináttulandsleiki gegn Póllandi Jóhanna Margrét hefur farið á kostum með Haukum sem eru með fullt hús stiga eftir fyrstu fjórar umferðirnar og deila toppsætinu með ÍR og Fram. Jóhanna er langmarkahæsti leikmaður Olís-deildarinnar eftir fjórar umferðir. Hún hefur skorað 52 mörk í fjórum leikjum, eða að meðaltali 13 mörk í leik. Næst á markalistanum er Katrín S. Scheving Thorsteinsdóttir hjá Gróttu með 39 mörk. Jóhanna á jafnframt markahæstu frammistöðu leikmanns í einum leik í deildinni í vetur. Hún skoraði 17 mörk gegn Stjörnunni í síðustu umferð og hefur alls þrisvar sinnum skorað tíu mörk eða fleiri í leik á tímabilinu. Frammistaða hennar hefur heldur ekki farið fram hjá Handkastinu. Jóhanna Margrét hefur verið valin í Cell Tech kreatín lið Handkastsins í öllum fjórum umferðum Olís-deildarinnar til þessa. Þá hefur hún í tvígang verið valin besti leikmaður umferðarinnar. Þrátt fyrir þessa mögnuðu byrjun fær hún ekki tækifæri með landsliðinu í verkefninu gegn Póllandi í lok mánaðarins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.