Engin viðurlög vegna málsins hjá Herði og Stjörnunni
Kristinn Steinn Traustason

Aganefnd HSÍ hefur ákveðið að beita engum viðurlögum vegna atviks sem átti sér stað eftir leik Harðar og Stjörnunnar í 3. flokki karla á Ísafirði í lok september. Málinu telst þar með lokið. Þetta kemur fram á heimasíðu HSÍ.

Atvikið átti sér stað eftir leik liðanna 27. september en þremur dögum síðar barst aganefnd erindi frá málskotsnefnd HSÍ þar sem málinu var vísað til nefndarinnar.

VEITTIST AÐ ÞJÁLFARA STJÖRNUNNAR OG HAFÐI HÓTANIR Í GARÐ HANS

HÖRÐUR SVARAR STJÖRNUNNI – SEGIR FÉLAGIÐ SKÁLDA MÁLSATVIK

Bæði félög fengu kost á að skila greinargerð vegna málsins en hvorugt þeirra gerði það.

Hörður og Stjarnan gáfu hins vegar út sameiginlega yfirlýsingu 3. október þar sem kom fram að aðalþjálfari Stjörnunnar og aðstoðarþjálfari Harðar hefðu rætt saman og beðið hvor annan afsökunar vegna atvikanna.

Þar kom jafnframt fram að fullar sættir hefðu náðst á milli aðila, allar kvartanir vegna málsins hefðu verið dregnar til baka og félögin teldu ekki tilefni til frekari aðgerða.

Aganefnd HSÍ tók mið af þeirri niðurstöðu og þeirri staðreynd að hvorugt félagið skilaði greinargerð.

„Með vísan til framangreinds telur aganefnd sér ekki fært að skera úr um hvort beita skuli viðurlögum í málinu,“ segir í úrskurði nefndarinnar.

Fullar sættir í máli Harðar og Stjörnunnar – kvartanir dregnar til baka

Niðurstaðan er því sú að engum viðurlögum verður beitt og málinu telst formlega lokið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top