Eisenach kom á óvart í Mannheim – Fyrsti útisigur tímabilsins
UWE ANSPACH / dpa Picture-Alliance via AFP

8. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar hófst í kvöld með tveimur leikjum. Eisenach gerði góða ferð til Mannheim og vann sannfærandi fjögurra marka sigur á Rhein-Neckar Löwen, 33-29, á meðan Stuttgart hafði betur gegn Wetzlar, 31-26.

    Eisenach var með yfirhöndina frá fyrstu mínútu gegn Rhein-Neckar Löwen og leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 18-13.

    Gestirnir byrjuðu af miklum krafti og komust í 2-0 eftir rúmlega mínútu. Þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður höfðu þeir aukið forskotið í fimm mörk, 10-5.

    Heimamenn komu ákveðnari til leiks í síðari hálfleik en tókst aldrei að ógna forystu Eisenach að ráði. Munurinn hélst lengst af á bilinu fjögur til sex mörk og að lokum fögnuðu gestirnir öruggum sigri.

    Felix Aellen var markahæstur í liði Eisenach með sjö mörk. Haukur Þrastarson var markahæstur í liði Rhein Neckar Löwen með sjö mörk.

    Sigurinn var sá fyrsti hjá Eisenach á útivelli á tímabilinu en liðið er nú komið með fimm stig eftir átta leiki og situr í 13. sæti deildarinnar. Það var því sérstaklega ánægjulegt kvöld fyrir Sebastian Hinze, þjálfara Eisenach, sem stýrði liði sínu til sigurs gegn Rhein-Neckar Löwen á útivelli.

    Í hinum leik kvöldsins vann Stuttgart fimm marka sigur á Wetzlar, 31-26, og bætti tveimur mikilvægum stigum í safnið. Wetzlar er hins vegar enn án sigurs í þýsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

    Nýjustu fréttir

    HAFA SAMBAND

    Handkastið.net

    Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

    Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


    handkastid@handkastid.net

    Scroll to Top