Gísli stoðsendingahæstur – Tveir Íslendingar á topp fimm
RONNY HARTMANN /AFP

8. umferðin í þýsku Bundesligunni hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem tvö Íslendingalið verða í eldlínunni.

    Rhein-Neckar Löwen, lið Hauks Þrastarsonar, fær Eisenach í heimsókn á meðan Wetzlar, undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar, heimsækir Stuttgart. Báðir leikirnir hefjast klukkan 17:00 að íslenskum tíma.

    Gísli Þorgeir Kristjánsson, leikstjórnandi Magdeburg, er stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar fyrir umferðina með 40 stoðsendingar. Hann hefur nokkuð forskot á næsta mann en tveir Íslendingar eru meðal fimm efstu á listanum.

    Niels Versteijnen hjá Lemgo er í öðru sæti með 29 stoðsendingar og Nicolaj Jørgensen hjá Hamburg í því þriðja með 28. Mathias Gidsel, leikmaður Füchse Berlin, er fjórði með 27 stoðsendingar.

    Haukur Þrastarson er síðan í 5. sæti með 26 stoðsendingar og fær tækifæri til að bæta við þann fjölda gegn Eisenach í kvöld.

    Flestar stoðsendingar fyrir 8. umferð:

    SætiLeikmaðurFélagStoðsendingar
    1.Gísli Þorgeir KristjánssonMagdeburg40
    2.Niels VersteijnenLemgo29
    3.Nicolaj JørgensenHamburg28
    4.Mathias GidselFüchse Berlin27
    5.Haukur ÞrastarsonRhein-Neckar Löwen26

    Nýjustu fréttir

    HAFA SAMBAND

    Handkastið.net

    Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

    Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


    handkastid@handkastid.net

    Scroll to Top