HK 2 jafnaði rétt fyrir leikslok gegn Fjölni
Toggi Pop

Fjölnir og HK 2 skildu jöfn, 27–27, í Grill 66-deild kvenna í gærkvöldi. Emilía Guðný Magnúsdóttir tryggði HK stig með jöfnunarmarki þegar aðeins þrjár sekúndur voru eftir af leiknum.

Fjölnir hafði tveggja marka forskot í hálfleik, 15–13, og náði sex marka forystu í síðari hálfleik, 22–16 og 23–17. HK gafst hins vegar ekki upp og vann forskotið jafnt og þétt niður.

Sara Kristín Pedersen kom Fjölni í 27–25 þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir. Kristín Einarsdóttir minnkaði muninn í eitt mark áður en Emilía Guðný jafnaði metin á lokasekúndunum. Fjölnir skoraði því ekki síðustu þrjár mínútur leiksins.

Sara Kristín var markahæst hjá Fjölni með átta mörk, Signý Harðardóttir skoraði sjö og Hildur Sóley Káradóttir fimm. Emilía Guðný skoraði átta mörk fyrir HK 2, Tinna Dröfn Hauksdóttir fimm og Kristín fjögur.

Fjölnir er í fjórða sæti deildarinnar með fimm stig eftir fimm leiki en HK 2 er sæti neðar með þrjú stig úr jafnmörgum leikjum.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top