Sveinn Jóhannsson og Þorgils Jón Svölu Baldursson voru í eldlínunni í Frakklandi og á Spáni í gærkvöldi. Chambéry bjargaði stigi með jöfnunarmarki á síðustu sekúndu en Caserío Ciudad Real vann nauman sigur á Granollers. Sveinn skoraði eitt mark þegar Chambéry gerði jafntefli við Chartres á útivelli, 35–35, í frönsku úrvalsdeildinni. Heimamenn náðu fjögurra marka forskoti í fyrri hálfleik en Chambéry vann sig aftur inn í leikinn. Spenna var allt fram á síðustu sekúndu þegar Émilien Peyronnet skoraði jöfnunarmark Chambéry eftir sendingu frá Lucas Vanègue og tryggði liðinu stig. Chambéry er í þrettánda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir sex leiki. Næst tekur liðið á móti Kadetten Schaffhausen í Evrópudeildinni á þriðjudaginn. Á Spáni vann Caserío Ciudad Real Granollers á heimavelli, 34–33. Þorgils Jón komst ekki á blað hjá sigurliðinu en Jorge Maqueda var markahæstur með átta mörk. David Cadarso skoraði sjö og Aitor Albizu fimm. Caserío hafði frumkvæðið og náði meðal annars fjögurra marka forskoti í síðari hálfleik. Granollers jafnaði hins vegar í 33–33 þegar 27 sekúndur voru eftir. Maqueda skoraði þá sigurmark heimamanna og Juan Manuel Bar varði síðasta skot Marcos Fis, svo bæði stigin urðu eftir í Ciudad Real.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.