Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður Magdeburg skoraði eitt flottasta mark 3.umferðar í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í vikunni að mati samfélagsmiðladeildar, EHF. Gísli skoraði svokallað sirkusmark eftir stoðsendingu frá liðsfélaga sínum, Ómari Inga Magnússyni í sigri Magdeburg gegn Kielce í Póllandi. Markið var það 28. hjá þýska liðinu en Gísli Þorgeir og Ómar Ingi fóru á kostum í leiknum og skoruðu ellefu mörk hvor í sigri Magdeburg. Samfélagsmiðladeild EHF hefur valið fimm flottustu mörk 3.umferðarinnar en þar var mark Gísla Þorgeirs í 2.sætið á eftir marki frá Mathias Gidsel sem skoraði 17 mörk í sigri Füchse Berlin gegn Porto. Hér að neðan má sjá fimm flottustu mörk 3.umferðar í Meistaradeild Evrópu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.