Tryggvi í undanúrslit – Arnór markahæstur og Elvar vann Íslendingaslaginn
Kristeinn Steinn Traustason

Íslenskir handboltamenn voru í eldlínunni í Noregi, Danmörku og Svíþjóð í gærkvöldi. Elverum tryggði sér sæti í undanúrslitum norska bikarsins, Ribe-Esbjerg vann Íslendingaslag í Danmörku og Amo fagnaði útisigri í Svíþjóð.

Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark þegar Elverum vann ríkjandi bikarmeistara Runar, 33–30, á heimavelli. Benjamin Berg var markahæstur hjá Elverum með tíu mörk.

Elverum var yfir í hálfleik, 18–14, og náði sjö marka forskoti snemma í síðari hálfleik, 22–15. Runar minnkaði muninn í tvö mörk en heimamenn héldu undan og tryggðu sér sæti í undanúrslitum.

Í Danmörku hafði Ribe-Esbjerg betur gegn Holstebro á útivelli, 38–33. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir sigurliðið en Jóhannes Berg Andrason fjögur fyrir Holstebro. Ribe-Esbjerg hafði fimm marka forskot í hálfleik, 19–14, og munurinn var sá sami í leikslok. Mads Aarhus og Karl Wallinius voru markahæstir hjá gestunum með sjö mörk hvor.

Benedikt Gunnar Óskarsson var í leikmannahópi Holstebro í fyrsta sinn en var ekki meðal markaskorara. Magnus Storgaard Pedersen var markahæstur hjá Holstebro með sjö mörk.

Í Svíþjóð vann Amo fimm marka útisigur á Lugi, 35–30. Arnar Birkir Hálfdánsson komst ekki á blað hjá Amo en Mathias Mark Pedersen var markahæstur með ellefu mörk.

Arnór Viðarsson var markahæstur hjá Karlskrona með sex mörk þegar liðið tapaði á útivelli gegn Malmö, 34–30.

Amo er í þriðja sæti sænsku deildarinnar með fimm stig eftir fjóra leiki en Karlskrona situr í tólfta sæti með tvö stig úr jafnmörgum leikjum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top