Tíu mörk Guðmundar Braga dugðu ekki – Tumi lagði toppliðið
Instagram HSG XeNTiS Bärnbach/Köflach)

Guðmundur Bragi Ástþórsson fór á kostum í austurrísku úrvalsdeildinni í gær þegar hann skoraði tíu mörk fyrir Bregenz. Það dugði þó ekki til sigurs en Tumi Steinn Rúnarsson og Breki Hrafn Árnason fögnuðu sigrum með sínum liðum.

Guðmundur Bragi var markahæstur hjá Bregenz sem tapaði á útivelli gegn ríkjandi meisturum Vöslau, 32-29. Jón Ómar Gíslason skoraði þrjú mörk fyrir Bregenz og skoruðu Íslendingarnir því samtals þrettán af 29 mörkum liðsins.

Bregenz byrjaði af krafti og komst í 5-1 en heimamenn unnu sig inn í leikinn og staðan í hálfleik var jöfn, 16-16. Vöslau náði yfirhöndinni eftir hlé en Bregenz var aðeins marki undir, 29-28, þegar þrjár mínútur voru eftir. Heimamenn reyndust hins vegar sterkari á lokakaflanum og tryggðu sér stigin tvö.

Tumi Steinn Rúnarsson skoraði fimm mörk þegar Bärnbach/Köflach vann góðan heimasigur á Fivers, 34-32, í sömu deild. Fivers var á toppi deildarinnar fyrir umferðina en varð að gefa toppsætið eftir með tapinu.

Jafnt var í hálfleik, 16-16, og lengi vel var lítið á milli liðanna. Heimamenn náðu hins vegar að slíta sig frá gestunum á síðustu tíu mínútunum og héldu forskotinu til loka.

Í Portúgal unnu Breki Hrafn og félagar í Benfica öruggan tólf marka útisigur á Vitória, 37-25. Leikurinn var í elleftu umferð portúgölsku úrvalsdeildarinnar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top