Janus Daði Smárason, Viktor Gísli Hallgrímsson og Bjarki Már Elísson fögnuðu báðir stórsigrum með félagsliðum sínum í gær. Barcelona vann ellefu marka útisigur á Granollers, 36-25, í spænsku úrvalsdeildinni á meðan PSG lagði Montpellier, 33-23, í frönsku úrvalsdeildinni. Janus Daði skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona sem leiddi 20-16 í hálfleik gegn Granollers. Barcelona jók forskotið jafnt og þétt í síðari hálfleik og vann að lokum öruggan ellefu marka sigur. Viktor Gísli Hallgrímsson varði fimm skot og var með 26% markvörslu í marki Barcelona. Adrián Sola var markahæstur hjá Barcelona með átta mörk en Dika Mem skoraði fimm. Mem náði jafnframt þeim áfanga að skora sitt þúsundasta mark fyrir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni. Bjarki Már Elísson skoraði tvö mörk í tíu marka sigri PSG gegn Montpellier, 33-23. Parísarliðið leiddi 17-13 í hálfleik og gerði út um leikinn með sterkum kafla í síðari hálfleik. Rodrigo Corrales varði fjórtán skot í marki PSG en Elohim Prandi var markahæstur með níu mörk. Bæði Barcelona og PSG eru með fullt hús stiga í sínum deildum eftir leiki helgarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.