Rúnar Sigtryggsson og lærisveinar hans í HSG Wetzlar eru enn án sigurs í þýsku úrvalsdeildinni eftir ellefu umferðir en liðið tapaði með minnsta mun gegn MT Melsungen á heimavelli í gær, 24-25. Wetzlar situr á botni deildarinnar með aðeins tvö stig og er staða liðsins orðin afar erfið eftir fyrstu ellefu leiki tímabilsins. Það var þó ekki baráttuleysi sem varð Wetzlar að falli í gær. Heimamenn sýndu mikinn karakter á lokamínútunum og voru hársbreidd frá því að tryggja sér annað stigið. Melsungen leiddi með þremur mörkum í hálfleik, 13-10, og var lengst af með yfirhöndina. Gestirnir komust meðal annars í 25-22 þegar þrjár mínútur voru eftir en Wetzlar neitaði að gefast upp. Heimamenn skoruðu tvö mörk í röð og fengu boltann þegar sautján sekúndur voru eftir. Þeir náðu hins vegar ekki að skapa sér nægilega gott færi og lokaskot Paul Kompenhans fór fram hjá markinu. Rúnar var svekktur eftir leikinn og sagði í samtali við þýska miðilinn Gießener Allgemeine að liðið hefði þurft að koma sér fyrr inn í leikinn. „Ég hefði viljað að við værum meira inni í leiknum,“ sagði Rúnar og vísaði til þess að Wetzlar hefði lengst af þurft að elta Melsungen. Hann sagði ekki alla leikmenn sína hafa náð sínu besta en margir hefðu hins vegar lagt allt sitt í leikinn. Rúnar var ánægður með baráttuna á lokamínútunum en sagði hana hafa komið of seint. „Við vorum mjög nálægt þeim í lokin með hjálp áhorfenda en þetta var of lítið og of seint.“ Michael Allendorf, íþróttastjóri Wetzlar, tók í svipaðan streng eftir leikinn. „Við þurfum nauðsynlega á stigum að halda. Við vorum nálægt því í dag og það hefði kannski verið eitthvað í boði en enn og aftur dugði það ekki til,“ sagði Allendorf. Reynir Þór Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Melsungen í leiknum og skoraði meðal annars mikilvægt mark undir lokin þegar hann kom gestunum í þriggja marka forskot. Wetzlar hefur nú leikið ellefu deildarleiki án sigurs og situr áfram á botni þýsku úrvalsdeildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.