Átta af sautján leika erlendis – Vill sjá fleiri fara út

Átta af þeim 17 leikmönnum sem Arnar Pétursson valdi í íslenska landsliðshópinn fyrir EM leika erlendis. Fimm þeirra fóru út í atvinnumennsku í sumar og landsliðsþjálfarinn segir breytt umhverfi þegar vera farið að skila sér.

„Fyrir það fyrsta finn ég að þessar stelpur eru komnar í annað umhverfi. Hluti þeirra hefur verið að glíma við meiðsli en þær eru nú í umhverfi þar sem þær geta æft og stundað handbolta í stað þess að vera í fullri vinnu og fullu námi.“

Þessar fara á EM í Rúmeníu

Lilja Ágústsdóttir, Alfa Brá Oddsdóttir, Lovísa Thompson, Thea Imani Sturlurdóttir og Katrín Tinna Jensdóttir fóru allar út í atvinnumennsku í sumar. Elín Klara Þorkelsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir eru á sínu öðru ári og Díana Dögg Magnúsdóttir hefur leikið í Þýskalandi undanfarin ár.

Arnar segir að aðstæður atvinnumanna gefi leikmönnunum meira svigrúm til að einbeita sér að íþróttinni.

„Við búum við það hér heima en þarna snýst þetta allt um handbolta, frá A til Ö. Tíminn og kúltúrinn er öðruvísi, í mörgum tilfellum betri, og ég finn að það er að skila sér. Það er mjög gott skref að við séum að ná fleiri stelpum út og í sterkar deildir. Það mun skila sér og hjálpa okkur í þeirri vegferð sem við erum á. Ég tel það mikilvægt fyrir okkur.“

Hann telur fleiri íslenska leikmenn eiga erindi í atvinnumennsku og kveðst ætla að hvetja þær til að taka skrefið.

„Það er engin spurning. Ég sé fyrir mér að það séu leikmenn sem geta farið út og ég mun hvetja þær til þess. En það þarf að taka rétt skref og við þurfum að vanda málin.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top