Kristianstad þurfti að sætta sig við óvænt tap gegn nýliðum Skånela á útivelli í dag í sænsku úrvalsdeildinni á meðan Sandefjord tapaði sínum öðrum leik í röð í norsku úrvalsdeildinni. Við hefjum yfirferðina í Noregi en í kvennadeildinni unnu Larvik þægilegan sigur á Molde, 35-25 en Dana Björg Guðmundsdóttir var fjarri góðu gamni en hún er að glíma við meiðsli. Larvik eru áfram með fullt hús stiga á toppi deildarinnar með sextán stig eftir átta umferðir. Viking unnu nauman og mikilvægan sigur á Kristiansand í dag í norsku karladeildinni, 30-31 þar sem Tryggvi Garðar Jónsson skoraði fjögur mörk úr sjö skotum og gaf eina stoðsendingu að auki en með sigrinum fór liðið upp í tíunda sætið með átta stig og eru aðeins stigi frá topp átta sem gefur sæti í úrslitakeppnina. Sandefjord tapaði sínum öðrum leik í röð, að þessu sinni gegn Kolstad með átta mörkum en lokatölurnar urðu 38-30 fyrir heimamenn. Sigurjón Guðmundsson átti þrátt fyrir tapið góðan leik í marki gestanna en hann varði ellefu skot af þeim þrjátíu og sjö sem hann fékk á sig eða 30% markvarsla og varði einnig þrjú víti af þeim fimm sem hann reyndi við. Sandefjord eru í sjötta sæti deildarinnar en þó aðeins einu stigi frá þriðja sætinu. Það er gríðarlega mikil spenna í sænsku deildinni en þó erfitt að gera sér fullkomlega grein fyrir henni því liðin hafa spilað mismarga leiki. Meistararnir í Kristianstad töpuðu sínum öðrum leik í dag á útivelli gegn nýliðum Skånela, 32-30. Einar Bragi Aðalsteinsson var atkvæðamestur Íslendinganna en hann skoraði tvö mörk úr sex skotum, gaf tvær stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki á meðan Andri Erlingsson skoraði tvö mörk úr fjórum skotum og gaf eina stoðsendingu. Að lokum klikkaði Baldur Fritz Bjarnason á eina skoti sínu í leiknum en gaf eina stoðsendingu. Eftir tap dagsins sitja Kristianstad í áttunda sæti deildarinnar en eiga þó einn til tvo leiki til góða á flest liðin fyrir ofan sig og eru aðeins stigi frá öðru sætinu. Sävehof tók með sér eitt stig úr heimsókn sinni til Helsingborgar í dag en lokatölur í leiknum urðu 26-26. Birgir Steinn Jónsson skoraði eitt mark úr fjórum skotum fyrir gestina og gaf einnig eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun. Sävehof sitja í öðru sæti deildarinnar ásamt Ystad og Amo en öll þrjú liðin eru með ellefu stig, tveimur á eftir Malmö en Sävehof á tvo leiki til góða á Malmö. Amo unnu góðan sigur í dag á Önnereds, 34-32 en Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði þrjú mörk úr tíu skotum og gaf tvær stoðsendingar að auki en Amo eru búnir að vinna tvo öfluga sigra í röð og eru komnir í annað sætið eins og kom fram hér að ofan. Úrslit dagsins: Larvik 35-25 Molde Kristianstad 30-31 Viking Kolstad 38-30 Sandefjord Skånela 32-30 Kristianstad Helsingborg 26-26 Sävehof Amo 34-32 Önnereds

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.