Gunnar Róbertsson jafnaði 63 ára gamalt met – Ísak Logi aðeins tveimur mörkum fá metajöfnun
Sævar Jónasson

Gunnar Róbertsson jafnaði um helgina 63 ára gamalt markamet í efstu deild karla þegar hann fór yfir 100 marka múrinn í sínum níunda leik á tímabilinu.

Gunnar skoraði 14 mörk fyrir Val gegn Aftureldingu í gær og er nú kominn með 109 mörk eftir níu leiki. Þar með jafnaði hann afrek Ingólfs Óskarssonar frá árinu 1963 en Ingólfur fór yfir 100 mörkin í sínum níunda leik með Fram það ár.

Ingólfur átti stórkostlegt tímabil 1963 og skoraði alls 122 mörk í aðeins tíu leikjum, eða 12,2 mörk að meðaltali í leik. Blaðaumfjöllun þess tíma sýnir að hann var með 96 mörk fyrir níunda leik Fram en skoraði þá 16 mörk gegn KR og fór upp í 112 deildarmörk.

Gunnar var nálægt því að bæta metið og verða fyrstur til að ná 100 mörkum í aðeins átta leikjum en þurfti að bíða einum leik lengur eftir að hafa skorað „aðeins“ fimm mörk á útivelli gegn Stjörnunni á þriðjudaginn. Með mörkunum 14 gegn Aftureldingu var múrinn hins vegar rofinn og metið frá 1963 jafnað.

Gunnar var ekki sá eini sem sótti að metajöfnun um helgina því Ísak Logi Einarsson skoraði 12 mörk fyrir Stjörnuna gegn ÍBV í dag og er nú kominn með 98 mörk eftir níu leiki. Hann vantaði því einungis tvö mörk til viðbótar til að ná 100 marka múrnum í sínum níunda leik og jafna þar með afrek Ingólfs og Gunnars.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top