Norska landsliðsmaðurinn Sander Sagosen sér loksins fram á að snúa aftur á völlinn með danska stórliðinu Álaborg eftir að hafa verið frá keppni vegna meiðsla síðan í september. Sagosen hefur glímt við álagsmeiðsli í mjaðmagrind sem hafa haldið honum frá æfingum og keppni undanfarnar vikur. Nú er hins vegar farið að sjá fyrir endann á endurhæfingunni og hefur Norðmaðurinn sett sér það markmið að snúa aftur í bikarleik Álaborgar gegn Sønderjyske 11. nóvember. Sagosen greindi frá þessu í samtali við danska miðilinn Nordjyske. „Mér finnst ég geta gert flest á 80–85 prósentum af fullri getu. Nú vantar bara síðustu prósentin áður en ég fæ að æfa á fullum krafti,“ sagði Sagosen. Hann hefur enn ekki fengið leyfi til að taka fullan þátt í æfingum með liðsfélögum sínum og þarf sérstaklega að vinna í því að endurheimta sprengikraftinn. Sagosen vonast til að geta leikið gegn Sønderjyske í dönsku bikarkeppninni 11. nóvember. Takist honum ekki að verða klár fyrir þann leik er næsta markmið viðureign Álaborgar gegn Skanderborg Aarhus þremur dögum síðar, 14. nóvember. Sagosen er einn af lykilmönnum Álaborgar og norska landsliðsins og því yrði endurkoma hans mikil búbót fyrir danska stórliðið. Hann hefur verið einn af fremstu handboltamönnum heims undanfarin ár og lék meðal annars með PSG og Kiel áður en hann sneri aftur til Álaborgar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.