HSG Wetzlar hefur enn ekki unnið leik í þýsku Bundesligunni eftir tíu umferðir og staða liðsins veldur Stefan Kretzschmar, fyrrverandi landsliðsmanni Þýskalands, miklum áhyggjum. Wetzlar mætir Melsungen í Hessen-slagnum í dag og freistar þess að vinna sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Wetzlar hefur aðeins náð í tvö stig í fyrstu tíu leikjum tímabilsins. Þau komu úr jafnteflum á heimavelli gegn ThSV Eisenach og Rhein-Neckar Löwen. Síðasti sigur liðsins í Bundesligunni kom 23. maí á síðasta tímabili þegar Wetzlar vann HC Erlangen 29-26 á heimavelli. Stefan Kretzschmar lýsti yfir miklum áhyggjum af stöðu félagsins í hlaðvarpsþættinum Kretzsche & Schmiso. „Ég hef verulegar áhyggjur af Wetzlar. Þeir gera svo ótrúlega mörg mistök í leikjunum. Dominik Mappes var nánast með 100 í HPI-einkunn í útileiknum gegn Füchse Berlin en restin af liðinu gerði bara fáránlega mikið af mistökum,“ sagði Kretzschmar. „Ég skil ekki af hverju þeir standa sig ekki. Þeir hafa í raun mannskap til að vera komnir með fjögur til sex stig,“ sagði hann. Wetzlar hefur átt í vandræðum í sóknarleiknum, sérstaklega í stöðu vinstri skyttu. Jona Schoch og Doruk Pehlivan hafa glímt við meiðsli og Nikolaj Læsø hefur ekki náð sér á strik. Kretzschmar telur þó að varnarleikur liðsins ætti að vera mun betri en raun ber vitni. „Vörnin ætti í raun að vera að virka vel,“ sagði hann og benti á að Josip Šimić og Petter Øverby mynduðu sterkt miðvarðarpar. „Þetta er miðvarðarpar sem hefur alla burði til að spila í Bundesligunni.“ Eftir leikinn gegn MT Melsungen tekur við landsleikjahlé í þýsku Bundesligunni. Að því loknu bíður Wetzlar mikilvægur leikur í fallbaráttunni gegn HBW Balingen-Weilstetten. Þar á eftir mætir liðið toppliði Kiel á útivelli áður en Frisch Auf Göppingen kemur í heimsókn í lok nóvember.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.