Fram 2 og HK 2 mættust í Grill 66 deild kvenna en leikið var í Lambhagahöllinni. Stál í stál og jafnræði einkenndi fyrstu 20 mínútur leiksins en þá áttu Fram stelpur góðan kafla og tóku fram úr HK stelpum og náðu góðu forskoti. Hélst það til loka fyrri hálfleiks og voru hálfleikstölur 14-10. Fram stelpur áttu mjög góða byrjun á seinni hálfleik og voru komnar 7 mörkum yfir þegar rúmar 10 mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. HK stelpur náðu aldrei að minnka þennan mun að neinu ráði og komust Fram stelpur mest 10 mörkum yfir. Að lokum fór það svo að Fram 2 unnu 33-24. Heilsteypt og flott frammistaða hjá þeim lengst af allan leikinn. Hjá Fram 2 var Aníta Rut Eggertsdóttir markahæst með 10 mörk. Arna Sif Jónsdóttir varði 12 skot. Hjá HK var Tinna Dröfn Hauksdóttir markahæst með 6 mörk. Freydís og Alma vörðu samtals 13 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.