Langri sigurgöngu Sporting lokið – Orri Freyr með fjögur mörk
ANDRZEJ IWANCZUK / AFP

Sporting tapaði 34-32 fyrir Porto í toppslag portúgölsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag. Þetta var fyrsta tap Sporting gegn portúgölsku liði síðan í desember 2024 en Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk fyrir Sporting.

Sporting hafði ekki tapað gegn portúgölsku liði síðan liðið beið 38-34 ósigur á útivelli gegn Benfica í desember 2024.

Porto batt því enda á langa sigurgöngu Sporting í innbyrðis viðureignum við portúgölsk lið með tveggja marka sigri í dag.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði fjögur mörk fyrir Sporting en Þorsteinn Leó Gunnarsson er enn frá vegna meiðsla.

Francisco Costa og Natan Díaz voru markahæstir Sporting með sjö mörk hvor. Jan Aregay skoraði fimm mörk.

Hjá Porto var Ricardo Brandão markahæstur með tíu mörk. Vasco Costa skoraði átta mörk og Antonio Llamazares sex.

Með sigrinum fór Porto upp fyrir Sporting á toppi portúgölsku úrvalsdeildarinnar.

Porto er með 30 stig eftir tíu leiki en Sporting er í öðru sæti með 28 stig eftir jafnmarga leiki.

Benfica er í þriðja sæti með 27 stig eftir ellefu leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top