Valur 2 og FH mættust í kvöld í Grill 66 deild kvenna en leikið var á Hlíðarenda. Það er óhætt að segja að leikurinn hafi verið sveiflukenndur. FH stelpur byrjuðu miklu betur og voru m.a komnar í 3-9 eftir rúmt korter. Mest náðu þær 8 marka forskoti. Hálfleikstölur voru 9-14. FH stelpur héldu áfram uppteknum hætti og byrjuðu seinni hálfleikinn betur. Eftir rúmar 10 mínútur var staðan orðin 13-20 fyrir þeim. En þá hófst mikill viðsnúningur. 10 mínútum seinna voru Vals stelpur skyndilega búnar að jafna í 21-21. Og eftir það náðu þeir tökunum á leiknum og litu aldrei um öxl eftir það. Uppskáru þær að lokum sigur 28-25 í gríðarlega sveiflukenndum leik. Mjög svo óvænt úrslit á Hlíðarenda í kvöld. Hjá FH voru Dagný Þorgilsdóttir og Sylvía Björt Blöndal markahæstar með 5 mörk. Sigrún Ásta Möller varði 8 skot. Hjá Val 2 voru Eyrún Anna Arnarsdóttir og Guðrún Ásta Magnúsdóttir markahæstar með 6 mörk. Iðunn Vala varði 5 skot. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.