Ringsted fengu skell í Íslendingaslag
(Egill Bjarni Friðjónsson)

Íslendingaliðin í Danmörku áttu erfiðan dag í dag en aðeins eitt lið náði í sigur á meðan kvennalið Horsens fékk eitt stig á heimavelli.

Katrín Tinna Jensdóttir skoraði eitt mark úr einu skoti fyrir Horsens í dag þegar liðið gerði jafntefli við Ikast, 31-31. Jafnteflið var sterkt hjá Horsens en liðið er í áttunda sæti með sjö stig eftir átta leiki á meðan Ikast er í þriðja sæti deildarinnar.

Liðsmenn TTH Holstebro fóru illa með Ringsted í Íslendingaslag en lokatölurnar leiksins voru 43-30 fyrir heimamenn. Jóhannes Berg Andrason skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf tvær stoðsendingar á meðan Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði ekki en gaf eina stoðsendingu. Hjá gestunum skoraði Ísak Gústafsson þrjú mörk úr sex skotum, mikilvægur sigur hjá Holstebro sem eru þó ennþá fimm stigum frá topp átta á meðan Ringsted eru áfram næstneðstir aðeins stigi frá botnsætinu.

Ribe-Esbjerg tapaði naumlega á heimavelli gegn meisturum Álaborg, 30-32. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk úr sjö skotum, gaf sjö stoðsendingar og fékk eina brottvísun en Ribe-Esbjerg hafa átt erfitt uppdráttar undanfarið og tapað þremur leikjum í röð. Þeir sitja í fimmta sæti deildarinnar en eru þó aðeins stigi frá þriðja sætinu.

Að lokum töpuðu Skanderborg með þremur mörkum á heimavelli gegn Sønderjyske, 32-35 en Kristján Örn Kristjánsson, Donni skoraði þrjú mörk úr sex skotum og gaf tvær stoðsendingar. Sønderjyske fór upp í þriðja sætið með sigrinum á meðan heimamenn í Skanderborg eru í áttunda sætinu.

Úrslit dagsins:

Horsens 31-31 Ikast

TTH Holstebro 43-30 Ringsted

Ribe-Esbjerg 30-32 Aalborg

Skanderborg 32-35 Sønderjyske

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top