Franska úrvalsdeildarfélagið Cesson-Rennes hefur tekið þá óvenjulegu ákvörðun að setja aðalþjálfara sinn, Sébastien Leriche, til hliðar og fela aðstoðarþjálfaranum Yann Lemaire að stýra liðinu í leikjum. Leriche hefur þjálfað Cesson-Rennes frá árinu 2020 en er nú ekki lengur á varamannabekk félagsins og verður það að minnsta kosti fram að landsleikjahléinu í janúar. Ákvörðunin kemur í kjölfar afar erfiðrar byrjunar Cesson-Rennes í frönsku úrvalsdeildinni. Liðið hafði aðeins unnið einn af fyrstu níu leikjum sínum og var í fallsæti með tvö stig. Samkvæmt franska miðlinum HandNews, sem vísar til Ouest-France, töldu forráðamenn félagsins nauðsynlegt að grípa til aðgerða eftir tap gegn Sélestat. „Við vildum bregðast við eftir tapið gegn Sélestat. Innst inni höfðum við þá tilfinningu að Sébastien væri ekki með lausnirnar,“ sögðu forráðamenn félagsins um ákvörðunina. Það sem gerir stöðuna sérstaklega athyglisverða er að Leriche hefur ekki formlega verið rekinn úr starfi. Þess í stað hefur hann verið tekinn úr hlutverki sínu á hliðarlínunni og aðstoðarþjálfarinn Yann Lemaire fengið það verkefni að reyna að snúa gengi liðsins við. Lemaire hefur þegar stýrt liðinu í tveimur leikjum og mun halda því áfram að minnsta kosti fram í janúar. Leriche hafði áður tilkynnt að hann myndi yfirgefa Cesson-Rennes næsta sumar og taka við þjálfun Cherbourg. Þjálfarinn hefur því þegar ákveðið að söðla um að loknu tímabilinu en nú virðist samstarfið við Cesson-Rennes ætla að enda með nokkuð óvenjulegum hætti. Cesson-Rennes hefur átt erfitt uppdráttar í frönsku úrvalsdeildinni og er í harðri fallbaráttu. Forráðamenn félagsins vonast til að breytingin á þjálfarabekknum verði til þess að liðið nái að rétta úr kútnum á næstu vikum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.