Landsliðskonurnar, Lilja Ágústsdóttir og Lovísa Thompson voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í Evrópu í gær. Lilja og liðsfélagar hennar í Zwickau gerðu jafntefli gegn Leipzig í þýsku úrvalsdeildinni á meðan Lovísa og Benfica unnu sautján marka stórsigur í portúgölsku úrvalsdeildinni. Zwickau gerði 27-27 jafntefli gegn HC Leipzig á útivelli í þýsku úrvalsdeild kvenna eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11. Lilja Ágústsdóttir skoraði tvö mörk úr tveimur skotum í leiknum og var því með 100% skotnýtingu. Eftir jafnan upphafskafla náði Zwickau undirtökunum og var með fimm marka forskot þegar flautað var til hálfleiks. Heimakonur í Leipzig neituðu hins vegar að gefast upp og unnu sig jafnt og þétt inn í leikinn í síðari hálfleik. Leipzig jafnaði metin í 23-23 þegar tíu mínútur voru eftir og komst síðan yfir, 27-26, þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka. Lena Navne bjargaði hins vegar stigi fyrir Zwickau þegar hún jafnaði metin í 27-27 á lokamínútunni. Jafnteflið voru mikil vonbrigði fyrir Zwickau eftir sterkan fyrri hálfleik en Leipzig fagnaði sínu fyrsta stigi á tímabilinu. Lovísa Thompson og liðsfélagar hennar í Benfica héldu áfram sigurgöngu sinni í portúgölsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann öruggan sautján marka heimasigur á AA São Pedro do Sul, 34-17. Lovísa var í byrjunarliði Benfica og skoraði eitt mark í leiknum. Gestirnir byrjuðu ágætlega en Benfica tók fljótlega stjórnina og leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 16-9. Í síðari hálfleik juku heimakonur forskotið jafnt og þétt og þegar tíu mínútur voru eftir var staðan orðin 30-15. Benfica hefur nú unnið alla átta leiki sína í portúgölsku úrvalsdeildinni á tímabilinu og er enn með fullt hús stiga.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.