Dagur missir lykilmann fyrir undankeppni EM
JOHAN NILSSON /AFP

Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu verður án hægri skyttunnar Luka Lovre Klarica þegar Króatar hefja leik í undankeppni Evrópumótsins 2028 á miðvikudaginn.

Klarica, sem leikur með pólska stórliðinu Industria Kielce, glímir við bakmeiðsli og verður því ekki með króatíska landsliðinu í komandi verkefni.

Króatar taka á móti Litháen í Split á miðvikudaginn áður en þeir mæta Finnlandi á útivelli í síðari leik landsleikjagluggans. Króatíska landsliðið kemur til leiks sem bronsverðlaunahafi frá Evrópumótinu sem fram fór í janúar og febrúar á þessu ári. Þar hafði Króatía betur gegn Íslandi, 34–33, í leiknum um bronsverðlaunin eftir æsispennandi lokamínútur.

Dagur hefur náð frábærum árangri með króatíska landsliðið en undir hans stjórn vann liðið silfurverðlaun á heimsmeistaramótinu 2025 og bronsverðlaun á Evrópumótinu fyrr á þessu ári. Króatar hafa mikla reynslu af Evrópumótinu og hafa tekið þátt í öllum sautján lokakeppnum mótsins frá upphafi. Þjóðin hefur sjö sinnum unnið til verðlauna á EM en aldrei orðið Evrópumeistari.

Króatía og Litháen hafa mæst tvisvar áður í keppnisleikjum og hafa Króatar unnið í bæði skiptin. Síðast mættust þjóðirnar árið 2011 þegar Króatía vann 34–26. Þrátt fyrir að Króatar séu taldir mun sigurstranglegri í viðureigninni hefur Dagur lagt áherslu á mikilvægi þess að liðið mæti vel undirbúið til leiks enda stefnir Króatía á að fylgja eftir góðum árangri síðustu tveggja stórmóta.

Leikur Króatíu og Litháens hefst klukkan 16:00 á miðvikudaginn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top