Guðjón Guðmundsson, Gaupi, telur varnarleikinn helsta áhyggjuefni Vals þrátt fyrir mikil gæði í sóknarleik liðsins. Í nýjasta þætti Handkastsins ræddu hann og Stymmi klippari hvort Stiven Tobar Valencia gæti styrkt Valsliðið á síðari hluta tímabilsins. Gaupi sagði Valsmenn hafa yfir að ráða bestu útlínu Olís-deildarinnar. „Þeir hafa allavegana ekki nýtt þá breidd sem þeir hafa en hins vegar hafa þeir fram yfir önnur lið útlínu sem er sú besta í deildinni. Arnór Snær, Bjarni í Selvindi og Gunnar Róbertsson. Það er ekkert lið sem er með þessi gæði í sinni útlínu og þeir fara ansi langt á því. Sóknarleikurinn hjá þeim er frábær.“ Varnarleikurinn væri hins vegar annað mál. „Ef ég væri að stýra Val þá myndi ég hafa áhyggjur af varnarleiknum. Hann er ekki nægilega góður. Hann var afleitur gegn Stjörnunni og hann var ekki góður gegn Aftureldingu. Björgvin Páll er að verja vel og Jens hefur staðið sig prýðilega. Þetta er eitthvað sem Valsmenn þurfa að laga og breyta, ætli þeir sér einhverja hluti á þessu móti," sagði Gaupi sem telur brotthvarf lykilmanna úr vörninni frá síðasta tímabili hafa sett mark sitt á liðið. „Þeir hafa misst hryggjarstykkið varnarlega frá síðasta tímabili og þeir hafa ekki náð að laga það og breyta því,“ sagði Gaupi. Valur hefur fengið á sig 310 mörk í fyrstu níu leikjunum en topplið Hauka 248. Munurinn er því 62 mörk, eða tæplega sjö mörk að meðaltali í leik. Fara þarf niður í áttunda sæti deildarinnar til að finna lið sem hefur fengið á sig fleiri mörk en Valur. Stymmi klippari nefndi Stiven Tobar Valencia sem mögulega lausn á varnarvanda Vals. „Þú hleypur ekkert að því að laga þetta og það eru ekkert menn á hverju strái sem geta lagað þetta en það er samt einn niðri á Hlíðarenda sem gæti mögulega hjálpað þeim með þetta og það er spurning hvort hann komi inn seinni hluta tímabils. Ég er að tala um Stiven Tobar Valencia sem er hörku varnarmaður.“ Stymmi sagði Stiven vera lausan og velti fyrir sér hvort aðilar gætu náð saman um kjör. „Stiven er á lausu og það er spurning hvort þeir geti mæst á miðri leið varðandi launakröfur.“ Gaupi tók undir að Stiven gæti reynst mikill liðsstyrkur en kvaðst ekki vita hvert næsta skref leikmannsins yrði. „Ég hef ekki heyrt hvernig endurhæfingin hefur gengið en ég held að hann sé að lagast og það styttist í að hann verði klár. Hvort hann fari í Val eða eitthvað annað lið veit ég ekki, en auðvitað yrði þetta mikil styrking fyrir hvaða lið sem er í deildinni að fá Stiven Tobar og ég myndi alltaf taka hann ef ég væri stjórnarmaður hjá Val,“ sagði Gaupi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.