Leik KA/Þórs og Fram í Olís-deild kvenna sem fram átti að fara í KA-heimilinu á Akureyri í kvöld hefur verið frestað. Þetta staðfesti Ólafur Víðir Ólafsson, starfsmaður mótanefndar við Handkastið. Spáð er vonskuveðri víða um land í kvöld og gætu veðuraðstæður sett strik í reikninginn fyrir ferðalög milli landshluta. Frestunin kemur því ekki á óvart í ljósi veðurútlitsins, þótt ekki hafi verið staðfest að veðrið sé ástæða hennar. Bæði lið hafa átt misjöfnu gengi að fagna í Olís-deildinni það sem af er tímabili og því um mikilvægan leik að ræða fyrir bæði lið. Ekki liggur fyrir hvort fresta þurfi fleiri leikjum vegna veðursins en Handkastið mun fylgjast með gangi mála. KA á til að mynda leik framundan gegn Selfossi í 10.umferð Olís-deildar karla í kvöld klukkan 18:00. Uppfært: Liðin mætast á morgun, laugardag klukkan 14:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.