Lovísa með sex mörk í fimmtán marka stórsigri Benfica
Benfica

Lovísa Thompson og liðsfélagar hennar í Benfica unnu stórsigur á Kynžvart frá Tékklandi, 44-29, í fyrri leik liðanna í undankeppni Evrópudeildar kvenna í kvöld.

Benfica náði snemma yfirhöndinni í leiknum og leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 19-14. Portúgalska liðið hélt áfram að auka forskotið í síðari hálfleik og vann að lokum með fimmtán marka mun.

Lovísa Thompson skoraði sex mörk úr níu skotum fyrir Benfica og gaf eina stoðsendingu. Verónica Vavrová var markahæst hjá Kynžvart með sjö mörk.

Síðari leikur liðanna fer einnig fram í Portúgal á sunnudaginn og verður að teljast afar líklegt að Benfica tryggi sér sæti í næstu umferð eftir þennan stórsigur.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top