Orri Freyr fór á kostum í sigri Sporting
Julien Kammerer / DPPI via AFP

Íslenski landsliðsmaðurinn Orri Freyr Þorkelsson átti stórleik þegar Sporting vann sannfærandi 41-27 sigur á Marítimo í portúgölsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Orri Freyr var markahæsti leikmaður vallarins með tíu mörk í leiknum.

Sporting var með mikla yfirburði frá fyrstu mínútu og náði fljótlega góðu forskoti. Staðan var orðin 18-7 um miðjan fyrri hálfleik eftir sex mörk Sporting í röð og ljóst í hvað stefndi. Í hálfleik var Sporting komið með tíu marka forskot, 24-14, og héldu lærisveinar Ricardo Costa áfram að bæta við forskotið í síðari hálfleik.

Mest náði Sporting 19 marka forskoti þegar staðan var 39-20 en Marítimo náði að laga stöðuna undir lokin. Lokatölur urðu 41-27 og öruggur fjórtán marka sigur Sporting staðreynd. Orri Freyr var í aðalhlutverki í sóknarleik Sporting og skoraði tíu mörk, flest allra leikmanna. Sporting gat leyft sér að hvíla nokkra af lykilmönnum sínum stóran hluta leiksins, þar á meðal bræðurna Francisco og Martim Costa.

Þetta var fyrsti deildarleikur Sporting eftir 34-32 tap gegn Porto í byrjun nóvember en með því tapi lauk langri sigurgöngu félagsins í portúgölsku deildinni.

Með sigrinum komst Sporting aftur á topp portúgölsku úrvalsdeildarinnar með 31 stig, einu stigi meira en Porto sem á þó leik til góða.

Leikurinn fór fram í João Rocha-höllinni í Lissabon þrátt fyrir að Marítimo væri skráð heimalið. Upphaflega átti leikurinn að fara fram á Madeira í byrjun október en honum var frestað vegna ferðavandræða Marítimo eftir Evrópuleik liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top