Samskiptin við bróðurinn minnkuðu fyrir bræðraslaginn
Sævar Jónasson

Það verður sérstök viðureign í lokaleik 10. umferðar Olís-deildar karla þegar Víkingur tekur á móti Stjörnunni. Þar mætast bræðurnir Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Víkings og Sverrir Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar í mikilvægum leik í neðri hluta deildarinnar.

Aðeins eitt stig skilur liðin að fyrir viðureignina. Víkingur er með sex stig en Stjarnan situr í 11. sæti með fimm stig. Það er því mikið undir hjá báðum liðum sem freista þess að fjarlægjast botn deildarinnar.

Handkastið ræddi við Sverri fyrir leikinn og spurði hann meðal annars út í samskiptin við eldri bróður sinn í aðdraganda viðureignarinnar.

„Samskiptin eru búin að minnka talsvert síðustu daga, eðlilega kannski,“ sagði Sverrir léttur í bragði.

Sverrir segir þó að samband þeirra bræðra sé gott og að hann hafi í gegnum tíðina leitað mikið til Aðalsteins varðandi þjálfun og handbolta almennt.

„Það hefur verið mjög dýrmætt fyrir mig að geta leitað til Alla um ákveðin mál og svo einnig að ræða handbolta almennt. Alli er auðvitað gríðarlega reynslumikill og fær þjálfari og leita ég mikið til hans sem og pabba sem einnig er með ófá ár undir beltinu í þjálfun,“ sagði Sverrir.

Þrátt fyrir náin tengsl bræðranna verður engin miskunn gefin þegar flautað verður til leiks enda eru stigin afar mikilvæg fyrir bæði lið.

„Það er auðvitað svolítið sérstakt að mæta eldri bróður sínum en þegar leikurinn hefst verður þetta eins og hver annar leikur þar sem við ætlum að reyna að sækja dýrmæt stig.“

Sverrir segir stöðuna á leikmannahópi Stjörnunnar jafnframt ágæta fyrir leikinn og að engin stór áföll hafi orðið í undirbúningnum.

„Staðan á hópnum er bara góð, eitthvað hnjask hér og þar en almennt góð,“ sagði Sverrir að lokum.

Það verður því áhugavert að sjá hvor bróðirinn hefur betur í þessari fjölskylduviðureign þegar Víkingur og Stjarnan berjast um afar mikilvæg stig í Olís-deildinni á sunnudaginn klukkan 18:00. Leikurinn verður sýndur í beinni á Livey.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top