Toppbaráttuslagur í Grill 66 deild karla í kvöld
Sævar Jónasson

Það verður sannkallaður stórleikur í kvöld í Grill 66 deildinni. Toppbaráttuslagur milli ÍR og Gróttu.

Leikurinn er á Skógarselinu og hefst kl. 19:30.

Bæði liðin hafa leikið átta leiki í deildinni og hafa sigrað þá alla. Markatala liðanna er mjög áþekk. ÍR er með 91 mark í plús og er því á toppnum. Grótta er með 88 mörk í plús.

ÍR-ingar hafa skorað 306 mörk og fengið á sig 215 mörk. Grótta hefur skorað 284 mörk og fengið á sig 196 mörk.

Markahæsti leikmaður ÍR er Jökull Blöndal Björnsson með 64 mörk.

Markahæsti leikmaður Gróttu er Sæþór Atlason með 70 mörk.

Það er ljóst að það er afar forvitnilegur leikur framundan og án efa skemmtileg viðureign þar sem hart verður barist. Leikurinn verður að sjálfsögðu sýndur í þráðbeinni á Handboltapassanum eins og allir aðrir leikir í Olís og Grill66-deildum karla og kvenna.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top