Í kvöld fer fram toppbaráttuslagur milli ÍR og Gróttu í Grill 66 deild karla. Leikið verður á Skógarselinu og hefjast leikar kl. 19:30. Bæði liðin sitja á toppnum og eru taplaus með 8 stig. Það er ljóst að hart verður barist í kvöld. Handkastið setti sig í samband við báða þjálfara liðanna en náði aðeins í skottið á öðrum aðalþjálfara liðanna. Andri Sigfússon þjálfari Gróttu tjáði sig aðeins um leikinn og tímabilið í ár. "Tímabilið hjá okkur í Gróttu hefur farið vel af stað. Við höfum verið að slípast betur og betur saman eftir því sem liðið hefur á haustið enda voru miklar breytingar hjá okkur í sumar. Æfingarnar hafa verið góðar og það er greinilegt hungur í strákunum, hungur í að verða betri í dag en í gær. Í deildinni höfum við staðist allar áskoranirnar hingað til og það er ekkert sjálfgefið." "Deildin er þannig að það er auðvelt að mæta með værukærð í leiki og þá uppskerðu bara eitthvað drasl í lok leiks. Við höfum verið flottir og fá strákarnir mikið hrós fyrir það. Við höfum fengið okkar skerf af meiðslum í haust en hópurinn hefur þést og breidd hans verið meira sýnileg." "Á föstudaginn mætum við ÍR, liðinu sem er spáð beint upp í Olísdeildina. Þeir hafa á að skipa frábæru liði sem verður gaman að mæta. Við ætlum að leggja allt í sölurnar og vonandi skilar það góðri niðurstöðu," sagði Andri Sigfússon þjálfari Gróttu að lokum áður en hann skaust aftur til kennslu en hann starfar sem íþróttakennari að aðalstarfi. Leikurinn verður sýndur í þráðbeinni útsendingu á Handboltapassanum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.