Fjöldi íslenskra handknattleiksmanna var í eldlínunni víðs vegar um Evrópu í gær. Úrslitin voru misjöfn en meðal annars fögnuðu Sporting, Porto, Zürich og Ciudad Real sigrum á meðan Benfica, Alkaloid og Bärnbach/Köflach þurftu að sætta sig við tap. Orri Freyr Þorkelsson var markahæstur í liði Sporting sem vann stórsigur á Santo Tirso, 39-23, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Orri Freyr skoraði sjö mörk í leiknum og átti stóran þátt í sextán marka sigri Sporting. Breki Hrafn Árnason og félagar hans í Benfica töpuðu hins vegar afar svekkjandi, 27-26, gegn Águas Santas. Benfica leiddi 15-9 í hálfleik og náði mest sjö marka forskoti í síðari hálfleik áður en heimamenn sneru leiknum sér í vil og tryggðu sér eins marks sigur. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar hans í Porto unnu einnig stórsigur þegar liðið lagði Avanca að velli, 43-21, í portúgölsku úrvalsdeildinni. Porto vann því 22 marka sigur. Þorsteinn Leó er ennþá frá vegna meiðsla. Í svissneska bikarnum fögnuðu Birgir Már Birgisson og félagar hans í Zürich öruggum átta marka sigri gegn Altdorf, 38-30, og tryggðu sér sæti í næstu umferð keppninnar. Monsi og félagar hans í Alkaloid töpuðu 36-31 gegn Vardar í norðurmakedónsku úrvalsdeildinni. Monsi var hins vegar ekki í leikmannahópi Alkaloid í leiknum. Í Austurríki þurftu Tumi Steinn Rúnarsson og félagar hans í Bärnbach/Köflach að sætta sig við tveggja marka tap gegn Linz, 33-31. Tumi Steinn komst ekki á blað í leiknum en gaf tvær stoðsendingar. Bärnbach/Köflach situr í sjöunda sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar með tíu stig eftir tíu leiki. Á Spáni fögnuðu Þorgils Jón Baldursson og félagar hans í Ciudad Real naumum eins marks sigri gegn Cuenca, 30-29, í spænsku úrvalsdeildinni. Þorgils Jón skoraði eitt mark í leiknum en Ciudad Real situr í sjöunda sæti deildarinnar með tíu stig. Úrslit leikjanna:

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.