Forráðamenn þýska úrvalsdeildarfélagsins SG BBM Bietigheim skoðuðu um 40 þjálfara áður en þeir ákváðu að ráða Spánverjann Sebastià Salvat sem nýjan aðalþjálfara karlaliðs félagsins. Salvat tekur við af Hartmut Mayerhoffer, sem var látinn taka pokann sinn eftir aðeins ellefu umferðir í þýsku Bundesligunni. Bietigheim hefur átt erfitt uppdráttar eftir að hafa tryggt sér sæti í efstu deild og situr í næstneðsta sæti með aðeins tvo sigra í fyrstu ellefu leikjum sínum. Félagið ákvað því að grípa til breytinga á þjálfarastöðunni í von um að rétta gengi liðsins við. Salvat er 39 ára gamall og þekkir vel til hjá Bietigheim. Hann starfaði sem aðstoðarþjálfari og þjálfari yngri flokka félagsins á árunum 2021 til 2024 og var meðal annars í þjálfarateymi Iker Romero þegar liðið tryggði sér sæti í Bundesligunni árið 2024. Síðustu tvö ár hefur Salvat þjálfað austurríska félagið JAGS Vöslau þar sem hann náði frábærum árangri. Undir hans stjórn varð félagið austurrískur meistari í fyrsta sinn í sögu sinni, vann austurríska Ofurbikarinn og tryggði sér í fyrsta sinn þátttökurétt í Evrópukeppni félagsliða. Bastian Spahlinger, framkvæmdastjóri Bietigheim, segir að félagið hafi farið vandlega yfir mögulega eftirmenn Mayerhoffer áður en ákvörðunin var tekin. „Við fórum ítarlega yfir ráðningu nýs aðalþjálfara og ræddum um 40 mögulega kandídata. Að lokum vorum við einróma sammála um að velja Sebastià,“ sagði Spahlinger. Hann bætti við að Salvat hefði sýnt það hjá JAGS Vöslau að hann væri tilbúinn að bera ábyrgð sem aðalþjálfari og náð eftirtektarverðum árangri á skömmum tíma. Salvat hefur einnig starfað hjá Füchse Berlin, Handball Tirol og Meshkov Brest á þjálfaraferli sínum. Hann tekur strax við Bietigheim og verður fyrsti leikur hans við stjórnvölinn gegn MT Melsungen á sunnudaginn. Þar mætir hann meðal annars íslenska landsliðsmanninum Reyni Þór Stefánssyni, sem leikur með Melsungen. Verkefni Salvats verður fyrst og fremst að koma Bietigheim úr fallsætinu og tryggja félaginu áframhaldandi veru í sterkustu handboltadeild heims.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.