Yfirgefur Þýskaland og heldur heim til Danmerkur
Tom Weller

Danski markvörðurinn Simon Gade hefur ákveðið að yfirgefa þýsku Bundesliguna næsta sumar og snúa aftur heim til Danmerkur. Gade hefur skrifað undir þriggja ára samning við Skanderborg AGF sem gildir til sumarsins 2030.

Gade er 29 ára gamall og hefur leikið með Hannover-Burgdorf í þýsku úrvalsdeildinni frá árinu 2023. Þar áður lék hann með Álaborg og TTH Holstebro.

„Skanderborg AGF er mjög spennandi verkefni. Maður hefur séð þá þróun sem félagið er í og ég trúi því að þetta geti orðið enn stærra á næstu árum,“ sagði Gade í tilkynningu félagsins.

Gade segir jafnframt að löngunin til að snúa aftur heim til Danmerkur hafi haft áhrif á ákvörðun sína. Koma hans þýðir að Magnus Brandbyge, núverandi markvörður Skanderborg AGF mun yfirgefa félagið næsta sumar.

Skanderborg AGF hefur verið á mikilli uppleið að undanförnu og gerði sér meðal annars lítið fyrir og lagði danska stórliðið Álaborg á útivelli í gær, 29-27.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top