Freyr Aronsson (Sævar Jónasson)
Ásgeir Örn Hallgrímsson og Andri Sigfússon þjálfarar U18 ára karla landsliðs Íslands hafa valið eftirtalda leikmenn til æfinga sem hefjast 31. október Þessi árgangur vann til gullverðlauna á Ólympíuhátíð æskunnar í sumar þar sem liðið fór á kostum undir stjórn þeirra Ásgeirs Arnar, Andra Sigfússonar og Snorra Steins Guðjónssonar landsliðsþjálfara Íslands. Miðað við tilkynninguna frá HSÍ sem birtist í kvöld er Snorri Steinn Guðjónsson ekki nefndur meðal þjálfara liðsins að þessu sinni. Ekki er vitað hvort samningur Snorra Steins sem þjálfari U18 ára landsliðsins hafi ekki verið framlengdur eða hvort íþróttastjóri HSÍ, Jón Gunnlaugur Viggósson ásamt afreksnefnd HSÍ hafi viljað gera breytingar á þjálfarateyminu. Snorri Steinn sjálfur, situr í afreksnefnd HSÍ ásamt Þóri Hergeirssyni, Arnari Péturssyni og Jóni Gunnnlaugi íþróttastjóra HSÍ. 27 leikmenn hafa verið valdir í komandi verkefni hjá þeim Ásgeiri Erni og Andra Sigfússyni þar á meðal tveir markmenn frá ÍBV. Þó nokkrir leikmenn eru í hópnum sem hafa gert það gott bæði í Olís-deild karla og Grill66-deild karla. Markmenn: Anton Máni Francisco Heldersson, Valur Jóhannes Andri Hannesson, FH Morgan Goði Garner, ÍBV Sigurmundur Gísli Unnarsson, ÍBV Útileikmenn: Adam Ingi Sigurðsson, Afturelding Alex Unnar Hallgrímsson, Fram Anton Frans Sigurðsson, ÍBV Ari Freyr Gunnarsson, Stjarnan Bjarki Freyr Sindrason, HK Bjarki Snorrason, Valur Brynjar Narfi Arndal, FH Dagur Máni Siggeirsson, Stjarnan Freyr Aronsson, Haukar Gunnar Róbertsson, Valur Helgi Marinó Kristófersson, Haukar Kári Steinn Guðmundsson, Valur Kristján Andri Finnsson, Afturelding Kristófer Tómas Gíslason, Fram Logi Finnsson, Valur Matthías Dagur Þorsteinsson, Stjarnan Ómar Darri Sigurgeirsson, FH Patrekur Smári Arnarsson, ÍR Ragnar Hilmarsson, Selfoss Róbert Daði Jónsson, Haukar Sigurður Atli Ragnarsson, Valur Sindri Svend Þórisson, Hammarby Örn Kolur Kjartansson, ÍR
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.