Einar Bragi Aðalsteinsson (Raggi Óla)
Mark Einars Braga Aðalsteinssonar í leik Kristianstad og Sesvete í 2.umferð Evrópudeildarinnar í gær hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum keppninnar. Króatíska liðið Sesvete og Kristianstad gerðu jafntefli í leiknum 32-32 en Einar Bragi og félagar eru með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar. Markið sem Einar Bragi skoraði í upphafi leiks í stöðunni 2-2 hefur vakið athygli þar sem hann tekur þrjár gabbhreyfingar í sama markinu. Fyrst þykist hann ætla senda boltann niður í horn, síðan þykist hann ætla senda boltann aftur til baka á miðjumanninn áður en hann snýr boltanum síðan framhjá markverði Sesvete. Þetta var fyrsta og eina mark Einars Braga í leiknum. Mark Einars Braga má sjá hér að neðan.
Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.