Patrekur Jóhannesson (Sævar Jónasson)
Patreki Jóhannessyni hefur verið rekinn sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar. Þetta tilkynnti félagið nú rétt í þessu. Patrekur var á sínu öðru ári með kvennalið Stjörnunnar en liðið situr á botni Olís-deildarinnar án stiga eftir sex umferðir. Að auki tapaði liðið gegn Grill66-deildarliði FH í 16-liða úrslitum Powerade-bikarsins í gærkvöldi. Stjarnan endaði í 7.sæti Olís deildarinnar á síðustu leiktíð og hafði betur gegn Víkingi og Aftureldingu í umspili um sæti í Olís deildinni á þessu tímabili. Stjarnan mætir KA/Þór á heimavelli í 7.umferð Olís deildarinnar á laugardaginn næst komandi. Hanna Guðrún Stefánsdóttir sem hefur verið aðstoðarþjálfari Patreks mun stýra liðinu í þeim leik í það minnsta.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.