Haukur Þrastarson (Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP)
Haukur Þrastarson leikmaður Rhein Neckar Lowen og íslenska landsliðsins hefur verið útnefndur besti leikmaður Rhein Neckar Lowen í október. Haukur gekk í raðir þýska liðsins frá Dinamo Bucuresti í Rúmeníu í sumar og hefur leikið afar vel í upphafi tímabils í þýsku úrvalsdeildinni. Haukur er markahæsti leikmaður liðsins það sem af er tímabilinu með 95 mörk. Þá hefur hann gefið flestar stoðsendingar allra leikmanna í deildinni, 95 talsins. Spilamennska Hauks var frábær í október en hann skoraði 23 mörk í mánuðinum auk þess að gefa 23 stoðsendingar. Rhein Neckar Lowen situr í 7.sæti deildarinnar með 12 stig eftir tíu leiki en liðið mætir Magdeburg á sunnudaginn í stórleik umferðarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.