Grétar Áki Andersen þjálfari ÍR gerir ráð fyrir að Sylvía Sigríður Jónsdóttir leikmaður liðsins snúi aftur á völlinn í leikjum liðsins í desember eftir HM pásuna sem hefst í Olís-deildinni eftir næstu umferð. Sylvía Sigríður meiddist á hné í æfingarleik liðsins gegn FH á undirbúningstímabilinu í sumar þar sem hún refi aftara krossband. Sylvía þurfti ekki að gangast undir aðgerð en hefur verið með spelku sem hefur hjálpað henni til að ná bata. ,,Við erum að gera ráð fyrir að hún verði klár í leikina í desember. Það verður virkilega jákvætt fyrir okkur að fá hana aftur á gólfið en hún mun nýtast liðinu mjög vel í þeirri baráttu sem framundan er á tímabilinu,” sagði Grétar Áki í samtali við Handkastið. Sylvía Sigríður framlengdi samningi sínum við félagið fyrr í sumar en hún skoraði 75 mörk í 21 leik í Olís-deildinni á síðustu leiktíð. ÍR situr sem stendur í 2.sæti Olís-deildarinnar og mætir toppliði Vals í stórleik 9.umferðarinnar annað kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.